Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008
28.4.2008 | 14:13
Smá niðursveifla & nýjar myndir á barnalandi
Ætli sé ekki óhætt að segja að maður sé í einhverri niðursveiflu núna, gjörsamlega búin að fá nóg stundum Ég vona að ég sé ekki sú eina sem lendir í því að vera að niðurlotum komin & endalaust þreytt
Maður hreyfir vart á sér rassgatið í þessari prófatíð, er stöðugt þreyttur & finnst maður gjörsamlega andlaus & ömurlegur í því sem maður er að gera
Vá hvað mig hlakkar til þegar þetta verður búið núna en ég á samt eftir að læra í maí þar sem ég þarf í próf í lok maí líka
Oh hvað mig hlakkar til að fara að vinna, það verður sko frí fyrir mig
Jæja ætla ekki að þreyta ykkur meira með þessu væli, tími á smá update
Á laugardaginn var bara slakað á & krakkarnir skemmtu sér konunglega þar sem Sara, vinkona stelpnanna, gisti hjá þeim á föstudagskvöldinu & var hjá þeim fram yfir hádegi á laugardeginum Við Jói fórum svo á lokahóf körfuknattleiksdeildar Þórs um kvöldið & borðuðum voða góða grillmat frá Greifanum
Jói stóð sig glæsilega sem veislustjóri & var mikið fjör
Skemmtum okkur konunglega & vorum komin heim um ellefu leytið. Ákváðum að vera fótgangandi um kvöldið & var það himneskt þó svo það væri frekar kalt úti, frískandi bara
Ólína & Eyrún pössuðu krakkana & var víst mikið fjör hér á bæ
Borðuðu pítsu, átu nammi, fóru í singstar & horfðu á fjölskyldumynd
Enda voru krakkarnir steinsofnaðir þegar við komum heim
Á sunnudeginum var ferðinni heitið til Hríseyjar þar sem við vorum að fara í skírn Berglind & Gunni voru að skíra fallega strákinn sinn sem fæddist 1.febrúar síðastliðinn & fékk hann nafnið Auðunn Snær
Skírnarveislan var svo haldin í Brekku & var margt í boði, sveppasúpa, allskonar brauð með því ásamt fullt af tertum
Við fórum aftur heim með þrjú ferjunni & þá var bara lestur sem tók við hjá mér fram eftir kvöldi & heldur hann enn áfram
Ég mun ekki líta upp úr bókum fram til kl.14 á miðvikudag þegar erfiðasta prófið mitt er, sálfræði
Náði samt svona meðfram lestrinum að segja inn fullt af nýjum myndum á barnaland
Endilega kíkkið á þær
Jæja best að halda áfram að læra, er núna að læra utanað starfsemi heilans, ja allaveganna hluta hans
Lærdómskveðjur
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.4.2008 | 12:12
Gleðilegt sumar
Ein aðeins of sein í að óska gleðilegu sumari en læt það flakka samt & þakka ykkur öllum fyrir veturinn sem nú er liðinn & vona að sumarið verði ykkur öllum gott & hreint yndislegt Ætla nú ekki að fara djúpt í fréttir liðinnar viku en það hefur sko verið yfirdrifið að gera
Svo eitthvað sé nefnt þá voru fimleikaæfingar, próf, skilaverkefni ásamt einni heimsókn á sjúkrahúsið með litla strákinn minn
Ekkert alvarlegt en það fór að leka blóð á leikskólanum úr "litla vininum" & kom svo í ljós að það hefði verið dáltil sprunga þar á ferð sem blóðið hefði lekið úr
Þeir á sjúkrahúsinu vildu náttúrulega bara fullvissa sig um að þetta væri ekki komið frá þvagrásinni & nú er bara skol þarna 2x á dag svo hann verði fínn
Finnur stundum til við þvaglát & svona en það er nú bara eðlilegt.
Ég er semsagt búin að skila þeim verkefnum sem á að skila fyrir utan vettfangsskýrsluna mína sem ég á að skila 9.maí. Var í prófi í morgun í afbyggingu, ekki uppáhaldsfagið mitt en gekk bara okay þrátt fyrir það Svo núna fer ég á fullt í að læra fyrir stóra sálfræðiprófið mitt sem er upp úr öllu efninu & er næsta miðvikudag, svo nú verður tíminn nýttur í það
Ætla samt ekkert að læra í dag, ætla að laga til, baka brauð, elda góðan mat & vera með krökkunum mínum
Dagurinn í gær fór nú líka pínu í að vera með familíunni en við fórum um hádegið í Brynju & fengum okkur hádegismat, ís
Tengdaforeldrar mínir & Ólína komu með okkur áður en þau lögðu af stað suður
Ólína er að fara í skoðun í dag hjá hjartalækninum. Gangi þér vel elskan
Svo var farið í búðir til að versla smá sumargjafir & svo í sólina til mömmu & pabba á pallinn
Svo var grillað um kvöldið dýrlegt læri & meðlæti svo maður fór saddur heim um hálf átta í gær
Svo tók bara lærdómur við um kvöldið, snemma að sofa & vaknað fersk í morgun um hálf sex til að læra aðeins meira
Fór svo upp á Hlíð áðan að skrifa undir ráðningarsamninginn minn & komst þá á hreint að ég verð trúlega mestmegnis á næturvöktum því ég þurfti að gefa svar því, þar sem þá er ég ráðin með ábyrgð & auðvitað meiri laun
Fínt fyrir námsmann
Svo er bara að skella sér á lokahóf körfuboltans annað kvöld & skreppa út í Hrísey á sunnudag í skírn til Gunna & Berglindar Ætla ekki að setja inn fleiri apríl myndir á barnaland fyrr en eftir skírnina á sunnudaginn
Fólk hefur nú líka ekki verið neitt ofboðslega duglegt að láta vita af sér þar eftir að maður er búinn að setja inn myndir svo ég er þá ekkert að flýta mér heldur
Ætla ekkert að ræða um þessi mótmæli hér enda myndi þá bara allt leysast út í vitleysu, þori ekki öðru en að hafa þá skoðun út af fyrir mig
Í lokin vil ég senda hlýjar kveðjur til Ivans litla frænda & fjölskyldu hans þar sem litli kúturinn brenndist pínu illa á fótum eftir að heitt vatn helltist á hann hjá dagmömmunni sinni Sendi ykkur þúsund kossa & knús frá okkur elskurnar
Sól & sumarkveðjur
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.4.2008 | 10:24
Fyrsta tönninn farin - Leitin að tönninni stendur enn
Helstu fréttirnar eru auðvitað þær að Margrét Birta missti sína fyrstu tönn í gærdag & hamingjan sem ríkir á þessum bæ með það er ekkert lítil
Stelpan sem er orðin 7 & hálfs var farin að missa alla von um að hún myndi missa tönn enda flest allir sem hún þekkir farnir að missa & sumir hverjir fyrir löngu síðan
Hún var búin að vera laus í dáltinn tíma en núna undir lokin eingöngu verið spurning um hvenær hún myndi detta, gátum ekki skilið þá hvað það var sem hélt henni ennþá
Hún kom allt í einu hlaupandi í gær eftir hádegið úr herberginu sínu með miklum ákafa til að tilkynna að tönninn væri dottin
Allir voru svo ánægðir með henni & þegar við vildum fá að sjá tönninna kom skrýtinn svipur á mína
Við reyndum að fá hana til að segja okkur hvernig hún datt o.s.frv en hún vissi það ekki & þar með hafði ekki hugmynd um hvar tönninn var
Mikil rannsóknarvinna hefur staðið vegna þessa & höfum við náð að þrengja leitina við bara þeirra herbergi
Hún var semsagt enn með tönnina eftir matinn þegar hún fór inn til að leika sér en ekki hjálpar til þar sem þær voru að fíflast upp í efri koju & ýmislegt fleira svo tönninn gæti verið hvar sem er
Þetta er verkefnið hennar & á hún að finna tönnina sína sjálf en hún segist ekki finna hana útaf dóti sem liggur á gólfinu ...
Við bentum henni nú bara á að þetta dót væri vegna þeirra systra & ættu þær sjálfar að ganga frá því svo hún gæti fundið tönnina sína
Tókum það líka fram að við myndum hjálpa henni að leita betur þegar þær væru búnar að ganga frá dótinu eftir sig
Þannig að tannálfurinn kom víst ekki í heimsókn í nótt en hver veit kannski í nótt, þ.e.a.s. ef tönninn finnst
Helgin bara róleg hjá okkur en laugardagurinn fór að mestu í ekki neitt Jói var grátbeðin um að vinna & gerði hann það & átti hann að vera búin kl:14 en var ekki komin heim fyrr en um kl:16, svo mikið var að gera
Ég verð nú að viðurkenna að ég var ekki neitt í skýjunum yfir þessu þar sem við höfðum ætlað að gera eitthvað saman með krökkunum áður en þetta vinnutal kom upp
Við krakkarnir vorum líka orðin frekar þreytt á biðinni enda vorum við bíllaus hér heima & biðum eftir kallinum síðan um hálf þrjú leytið
Komust við loksins af stað um hálf fimm & þá var brunað í búðirnar áður en þær lokuðu, fórum svo heim & gerðum matinn klárann í ofninn áður en við fórum aftur út
Á meðan maturinn mallaðist í ofninum fórum við öll saman að bera út moggann svo við komum svöng heim í mat
Kvöldið fór svo bara í hvíld & fjölskyldumynd & svo snemma í rúmið
Sunnudagurinn var líka rólegur en við skötuhjúin skelltum okkur á tónleika í Glerárkirkju sem voru haldnir í tilefni 50 ára afmælis körfuknattleiksdeildar Þórs
Það voru Konnararnir & Álftagerðisbræður sem skemmtu okkur & var þetta hin fínasta skemmtun, ekki of langdregið sem var fínt þar sem veðrið var hreint æði
Krakkarnir voru hjá fólkinu sínu í Vestursíðu & skemmtu sér konunglega, amman & afinn voru víst heillengi með barnabörnunum sínum úti & farið víst eitthvað á rúntinn líka
Erfiðast var að ná krökkunum heim aftur þar sem þau voru ekkert á því þótt klukkana væri að ganga sjö
Kvöldið hjá mér fór svo bara í lærdóm, ekkert annað & verður þessi dagur mjög svipaður, lærdómur
Próf á morgun hjá mér & skila tveim verkefnum & svo þarf maður að fara læra undir næsta próf sem er á föstudaginn
Þetta styttist senn
Stelpurnar eru svo að fara í kórpartý til Ástu kórstjóra í dag/kvöld frá kl:18-20 & er sko mikil tilhlökkun fyrir það
Meira síðar, hafið það gott í góða veðrinu
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.4.2008 | 17:33
"Þú berð ábyrð á eigin heilsu"
Já þetta var fyrirsögnin á fyrirlestrinum sem ég fór á í gærkveldi. Ég tók mér námspásu frá sálfræðinni & dreif mig, reif Svandísi mágkonu með mér & er hægt að segja að við höfum setið næstum stjarfar yfir öllu þessu Þetta var fyrirlestur/námskeið sem Davíð Kristinsson hélt & er óhætt að segja að maður hafi fengið nett sjokk
Ég kom út af fyrirlestrinum & hugsaði með mér : pjúff ég verð að henda megninu út úr eldhússkápunum hjá mér....
Ekki viss um að ég geti neytt sumra matvara aftur né notað örbylgjuofn framar
Vá mér líður eins & ég hafi alla tíð borðað vitlaust, gert allt vitlaust en haldið oft á tíðum að maður sé að gera svona rétt
Kannast einhver við það ???
Maður gerði sér í raun ekki grein fyrir hvað var svona rangt við að nota örbylgjuofnana til að hita vatnið okkar, velja fituminni mjólkurvörur eða eins & svo margir gera, borða special K morgunkorn
Ætla nú samt ekki að fara mikið meira í þessa sálma því það væri nokkurra bls færsla þar sem ég tók sjálf niður í gær um 4 fullar bls í punkta
Talaði svo við Davíð eftir fyrirlesturinn & ætla ég að vera í bandi við hann um áframhald þ.e.a.s. æfingarplan & annað
Mér líkaði bara mjög vel við hann, virðist vera mjög jarðbundinn maður sem veit hvað hann er að tala um. Þetta er bara eitthvað til að hlakka til á næstunni utan við að skólinn sé að klárast í bili
Jæja ég var í sjúkraprófi í sálfræðinni í morgun, alls 2 hlutaprófum Gekk ágætlega í öðru, því sem tengdist líffræðinni en var í bölvuðum vandræðum með hinn hlutann, sem var um minnið & atferlisgreiningu. Náði hreinlega ekki að læra það nógu vel fyrir prófið & er kennarinn líka ekki þekktur fyrir auðveld próf, þvert á móti, erfið próf er hennar aðferð
Helgin mín mun svo bara fara í lærdóm & meiri lærdóm
Svo ætla ég líka að hjúkra litlu stelpunni minni en það var hringt úr skólanum í dag & við beðin um að ná í hana
Hún var virkilega slöpp & komin með hita, hún svaf heima hjá mömmu & pabba á meðan ég var í prófinu í dag & er enn hálf drusluleg
Svo eru tónleikar með Konnurunum & Álftagerðisbræðrum á sunnudaginn
Ætla að reyna njóta þess líka að hafa kallinn eitthvað um helgina en hann hefur verið að vinna til 18 & 19 þessa vikuna & var svo beðin um að vera líka á morgun
Allir að fara yfir á sumardekkin, við gerðum það einmitt á miðvikudaginn & þreif meira að segja bílinn okkar, ÉG !!! Pælið í því, ég að þrífa bílinn, það tókst nú samt, ekkert rispaður eða skemmdur eftir mig
Hlakkar svo til þegar þessi lærdóms geðbilun verður búin & fæ að fara að vinna, það er sko afslöppun fyrir mig eftir alla törnina í skólanum
Jæja best að fara sinna litla lasarusnum mínum, þangað til næst, ÁFRAM EYÞÓR í kvöld Hafið það gott um helgina elskurnar
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.4.2008 | 10:25
Crazy days
Óhætt að segja að þetta séu frekar bilaðir dagar & hlakkar mig mjög til eftir síðasta prófið þann 5.maí þó svo ég þurfi í endurtökupróf í lok maí Er að skila stóru vekefni um dylskynjun á morgun í upplýsingarrýni, 2 hlutapróf í sálfræði á föstudag, aðferðarfræðipróf á þriðjudag ásamt skilum á spss tölfræðiverkefni sama dag & fyrsta stóra prófið á föstudaginn 25.apríl í afbyggingu
Nóg að gera næstu daga & vikur hjá mér
Höfðum það bara fínt um helgina. Ég fékk mér göngutúr með krakkana á laugardeginum til mömmu & pabba þar sem okkur var boðið í hádegismat, kjúklingapottrétt, ofboðslega góður Svo tók pabbi fram grilltengurnar & grillaði dásamlegan mat um kvöldið, ekki lélegt það
Eftir matinn fórum við upp í Vestursíðu til tengdó & eyddum kvöldinu með þeim, fram til um kl:23 & það voru sko þreytt börn sem fóru í rúmið það kvöld eftir ísát & dekur hjá ömmu & öfum þann daginn
Á sunnudeginum skrapp ég upp í Vestursíðu til að taka viðtal við tengdaforeldra mína & á meðan fóru stelpurnar upp í kjarnaskóg með Ólínu & Jón Páll á rúntinn með Svandísi & græddi shake hjá henni
Fórum svo heim þar sem allir fótboltagestirnir voru farnir eftir fótboltaleiki dagsins
Svo í gær lenti ég aftur í kattaóféti en ég gómaði einn inni hjá mér & ætlaði aldrei að ná honum út, var í stökustu vandræðum að ná honum Ég tók eftir því að hann var með ól en ekkert stóð á henni en ég var ákveðin í því að fara með hann þangað sem hann byggi & ætlaði sko að tala við eigandann
Loksins þegar ég náði taki á honum þá labbaði ég með hann út & henti honum út 6 alla leiðina að dyrinni reyndi hann að bíta mig & klóra & náði sko að klóra mig vel á hendinni
Verkefnið mitt í dag verður að klóra alla glugga að utan, nota kannski bara líka sítrónusafa, ég þoli þetta ekki
Er ekki sumarið svo að koma bara, Jói búin að vera vinna lengur þessa vikuna þó svo þetta sé ekki hans vika til kl: 18, það hefur bara verið svo mikið að gera, allir að skipta yfir á sumardekkin Núna er einmitt bíllinn okkar þar að fá sumardekkin sín
Eins gott að það byrji ekki að snjóa um helgina eða eitthvað
Þetta er búið að vera indælt, það að snjóinn sé að fara, ég hef nýtt undanfarna daga & hengt þvottinn minn út á snúru, alveg yndislegt að geta gert það
Langar svo að minna aftur á myndirnar á barnalandi en ég hef tekið eftir því að fullt að fólki er búið að skoða þær en enginn búin að kvitta eftir að nýju myndirnar komnar, pínu svekkt
Langar svo í lokin að senda baráttukveðjur upp á barnadeildina til Helga Þórs & fjölskyldu hans þar sem hann var lagður þar inn í gær en hann var búinn að vera veikur lengi & ekkert geta borðað, ja haldið neinu niðri síðan á föstudag
Er komin með næringu í æð & vonandi fer honum nú að batna eftir þetta
Hafið það gott, best að halda áfram að læra
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.4.2008 | 09:58
Gott að blogga í afbyggingu
Jebb það er ótrúlega gott að blogga í afbyggingu, ég geri mjög margt í þeim tímum, hendi inn á barnaland, skrifa í vefdagbók krakkana, blogga, rápa á barnalandssíðum o.fl Þetta eru hreinlega þeir tímar sem ég get ekki haldið einbeitningu enda verið að tala um eitthvað sem mér er ekkert sérstaklega hugfangið, stjórnmál, stríð, efnahagsmál & það allt á ensku
Dead boring.....
Hef samt ekki áhyggjur af áfanganum, hef náð ágætum einkunnum þrátt fyrir allt en við erum samt að tala um næstum 3 klst af tíma sem ég nýti í tölvumál mín
En já það eru semsagt komnar nýjar myndir inn á barnaland
Kíkkið á þær áður en ég hendi svo fleirum inn eftir helgina
Ekki mikið að frétta, ég búin að liggja fyrir síðustu daga með hita & verki, maga & hausverki, mjög skemmtilegt Komin á ról & er svona sæmileg en nú er bara álagið í skólanum að fara segja til sín, hrikalega mikið að gera
Í stuttu máli þá er verkefnaskil hjá mér í upplýsingarýni næsta fimmtudag, tek 2 hlutapróf í sálfræði næsta föstudag, svo er síðasta hlutaprófið í aðferðarfræði 22.apríl & einnig skil á einstaklingsverkefninu í þeim áfanga, lokaprófið í afbyggingu 25.apríl svo nóg er að gera
Svo eru lokaprófin eftir, sjúkraprófin & skil á vettfangsskýrslunni svo ég verð á fullu fram að því að ég byrja að vinna 12.maí
Svo er það bara kjúklingur í kvöld ásamt Simpson, Bandinu hans Bubba & kannski myndinni sem er á eftir með smá lærdóm & poppi, hver veit Er að ýta á foreldra mína um að ég fái að moka pallinn hjá þeim til að eiga möguleika á að fá þau til að grilla með okkur um helgina, veit ekki hvað verður
Okkar grill er ónýtt & ætlum við ekki að kaupa fyrr en í sumar, kannski í næsta mánuði, sjáum til bara þar sem við ætluðum að fjárfesta líka í tengdamömmuboxi, hjólum & tjaldi
Hafið það gott um helgina elskurnar & njótið þess að vera til
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
8.4.2008 | 13:59
Kettir ekki í uppáhaldi hjá mér þessa dagana
Einmitt, kettir ekki ofarlega á vinsældarlista mínum þessa dagana Veit ekkert meira pirrandi en að koma heim til mín & sjá drullug kattarspor út um allt í hvítu rúmfötunum mínum, hreinu hvítu gluggakistunum, í andlitum okkar á nóttinni eða hreinlega sundurnagaða kjúklingaleggi á eldhúsgólfinu sem áttu að vera í matinn um kvöldið
Ég hef ekkert á móti köttum sem slíkum svo framarlega sem þeir koma ekki óboðnir inn á mitt heimili & brjóta & bramla, éta matinn minn & drulla allt út fyrir mér
Ég verð bara að vera ljót í mér & segja, er erfitt fyrir eigendu að halda þessum dýrum inn á sínum eigin heimilum..... ef ekki af hverju að senda þau þá ekki bara í sveit eða sleppa því að eiga þá
Ef fólk er á annað borð að fara fá sér gæludýr á það að vera inn á þeirra heimilum en ekki annarra. Veit það er asnarlegt kannski að bera saman en ekki yrði það neitt vinsælt ef börnin mín færu óboðin inn í einhver hús & færu að brjóta hluti eða annað eins, það yrði allt brjálað & mér kennt um að geta ekki hugsað um börnin mín
Ég gjörsamlega missti mig í gær þegar ég kom heim & sá drullug kattarspor í hvítu rúmfötunum mínum & hringdi í framkvæmdarnefnd akureyrarbæjar til að vita hver réttur minn væri gagnvart þessu
Ég tjáði þeim að ég væri búin að fá nóg & vildi hreinlega vita hvort ég gæti eitthvað gert & sagði í reiði minni hvort ekki væri hreinlega hægt að eitra fyrir þeim í glugganum..... en sagði samt að ég vildi ekki drepa þá, bara varna því að þeir kæmust inn til mín. Hann benti mér á eitthvað efni sem væri til í Húsasmiðjunni í Gæludýrabúðinni en vissi ekki hvort það virkaði. Hitt í stöðunni væri að hringja bara í sig ef ég gómaði kött í íbúðinni minni & hann kæmi & tæki hann
Viti menn, núna í morgun þá lá mín í rúminu veik & gat engan veginn sofnað & þegar ég er u.þ.b. að sofna þá finn ég eitthvað við fætur mínar & var það ekki eitt stykki köttur
Mín var sko fljót á fætur & fram á eftir kettinum & hringdi í manninn síðan í gær, tjáði honum að ég væri með kött á heimilinu sem ég vildi losna við..... Maðurinn hjá Akureyrarbæ var fljótur & var mættur innan 10 mín. með búr & alles. Tók köttinn & sagði mér endilega að láta sig vita aftur ef fleiri kettir kæmu, þetta væri auðvitað algjörlega óviðunandi & ef þeir fyndu eiganda kattarins þá fengi hann að vita um þetta
Ég var ánægð yfir því að eitthvað system virki hér á Akureyri, að svona eigi ekki að gerast & eigendur eiga að vera ábyrgir gæludýra sinna eins & við foreldrar gagnvart börnum okkar...... Vona að ég muni aldrei framar sjá kött á mínu heimili, vona að þetta hafi alltaf verið sami kötturinn að verki & nú sé þessu lokið .....
Jæja best að halda áfram að læra fyrir sálfræðiprófið sem er á morgun en ég var svo heppin að fá einhvern hita í mig í gær með beinverkjum & öðru skemmtilegu Ætla nú samt að mæta í þetta próf sama hvernig ég verð þar sem ég hef verið að læra fyrir það & nenni engan veginn að taka eitt enn prófið í endurtöku. Annars er allt gott að frétta, leti á sunnudeginum en Ólína bauð stelpunum í bíó með sér & fórum við síðan í heimsókn til tengdó. Margrét Birta er svo að fara á eftir með bekknum sínum í keilu & er mikið tilhlökkun fyrir það. Er svo búið að lofa Elínu að við förum einhvern tímann öll saman í keilu því hún var ekki sátt við að fá ekki að fara líka
Sálfræðikveðjur
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.4.2008 | 23:24
Tengdapabbi 50 ára :o)
Elsku Nonni pabbi, afi & tengdapabbi. Innilegar hamingjuóskir í tilefni dagsins
Vona að dagurinn hafi verið þér eins góður & þú óskaðir þér. Við nutum þess að eyða deginum með þér & familíunni & skemmtu þér vel í kvöld í faðmi góðra vina
Mundu hversu óendanlega við elskum þig mikið & metum
Knús & kossar frá okkur öllum
Já tengdapabbi er 50 ára í dag & nutum við dagsins með þeim umvafin fullt af kökum & kræsingum
Jói minn byrjaði morguninn á því að færa pabba sínum snúð með fígúrukalli á
Já minn kall dreif sig bara í bakarí eftir að hann var búinn að bera út moggann & fór svo í mjög svo snemmabúna heimsókn
Ég & Magga skruppum svo saman í smá búðarráp um 10 leytið, leyta að afmælisgjöf fyrir afmælisbarnið & versla aðeins fyrir veisluna
Svo var veislan um daginn & vorum við hjá þeim alveg til um kl.21 í kvöld. Ég & Jói skruppum að vísu frá í 1 klst til að bera út moggann en það var svo gott að komast aðeins út & fá sér frískt loft & hreyfingu eftir allt átið
Við gáfum honum skyrtu & golfhanska en krakkarnir fengu að gefa honum 1 kassa hver af "afaís"
"Afaís" eru bara vanillustangir & var Jói búin að prenta út miða & setja á hvern kassa sem á stóð "Fyrsta hjálp afa"
geymist í kæli & svo var stór kross í miðjunni
Svona eins & á fyrsta hjálpar kössunum en þetta vakti mikla lukku
Svo þurfti Ólína aðeins að dekra við krakkana, gaf þeim nokkur sokkapör & stelpunum sokkabuxur. Svo fengu þær kjúklinganagga, franskar & svala hjá frænkunni sinni & ekki lítið ánægðar með það
Ólína kom að sunnan í gær & hafði þá keypt handa þeim sokkana en hún var í skoðun sem kom vel út enda þarf ekki að koma aftur suður fyrr en 25.apríl
Svo fékk Ólína að koma með okkur heim & fær að gista hjá okkur í nótt, fyrsta skiptið eftir aðgerðina enda var hún svo spennt að spyrja okkur hvort hún mætti nú gista
Jæja þangað til næst, hafið það gott elskurnar mínar
Dagga & co
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.4.2008 | 08:58
Graftarkýli en ekki streptakokkar
Já ætli ég kannski byrji ekki á að útskýra fyrirsögnina Svo er mál með vexti að á miðvikudaginn fór Jói minn í opinn tíma á heilsugæslunni. Hann var ekki fyrr búin að opna munninn þegar hann mátti loka honum aftur
Læknirinn tilkynnti honum þá að hann væri með risastórt graftarkýli í hálsinum & þyrfti að fara upp á slysadeild & láta skera í það
Eins & flestir sem þekkja manninn minn þá varð minn hvítur í framan við þessar fréttir enda ekki mikið fyrir nálar, hnífa né blóð & yfirleitt endar hann þá í gólfinu rænulaus
Við brunuðum upp á slysadeild & biðum eftir að háls-nef & eyrnalæknirinn sem kallaður var út, Erlingur, kæmi á svæðið. Í stuttu máli þá var hann deyfður í hálsinum með spreyi, sprautu & svo skorinn ágætis skurður í kýlið til að hleypa öllu út
Sem betur fer var Jói með lokuð augun þegar var skorið á kýlið því mikið var um blóð & gröft en hann stóð sig svo vel, leið ekkert yfir hann í þessu öllu saman
Strax á eftir fann hann mun því hann átti auðveldara með að kyngja & ekki eins kvalinn
Hann var samt sendur heim með resept upp á sýklalyf, parkódín & svo Vóstar. Þetta er allt annað líf, hann er orðinn hitalaus, getur fengið sér örlítið að borða & getur haldið sér vakandi yfir daginn
Ég skutla honum svo upp á slysadeild kl.13 í dag en það á að skoða hann, passa upp á það að skurðurinn loki sér ekki. Hann verður hreinsaður & haldinn opinn svo gröftur nái ekki aftur að loka sig inn í kýlinu
Ég get ekki verið með honum þar en ég verð í Ultratone fyrir Möggu tengdó á sama tíma. Magga er að fara suður með Ólínu í skoðun hjá hjartalækninum sínum.
Annarrs er allt gott að frétta hjá okkur, ég hef ekki enn orðið veik, sem betur fer Krakkarnir líka frískir & ánægðir
Rosalega mikið að gera í skólanum, finnst ég stundum vera að kafna úr álagi en ætla að taka apríl mánuð með trukki & eiga mér ekki annað líf en skólalíf & njóta þess svo þegar prófin eru búin
Ég er svo búin að ráða mig í vinnu en ég ákvað að vera í sumar á gamla vinnustaðnum mínum, ekkert að vera breyta til núna. Ég verð semsagt á Hlíð á Víðihlíð & ætla að vinna 60% vinnu eins & ég gerði áður. Ætli ég verði ekki eitthvað á næturvöktum en þetta verður bara fínt, smá hlé frá skólanum áður en næsta skólaár byrjar
Svo verður sumarið í að fara í útileigur & bara ferðast á Íslandi. Ég ætla samt að skreppa í smá konuferð til Leicester & versla
Ég er búin að vera safna saman konum í þessa ferð & ef einhverjum langar með, hafið bara samband. Það verður trúlegast farið miðvikudaginn 6.ágúst & komið aftur miðvikudaginn 13.ágúst.
Kveðjur frá afbyggingartíma
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.4.2008 | 10:19
Ein stutt færsla í hléi í sálfræðitíma :o)
Jæja ætla bara að henda inn einni stuttri færslu þar sem það er pása í sálfræði
Fermingin gekk eins & í lygasögu, hreint út sagt betur en maður hefði þorað að vona Ólína var hreint út sagt stórglæsileg & ljómaði öll af gleði, yndislegt að fylgjast með henni
Hún var orðin frekar þreytt um kvöldið, skiljanlega en bar sig samt ótrúlega vel & var ekki hægt að sjá um daginn að ekki voru nema 2 vikur síðan hún gekkst undir hjartaaðgerðina. Ég byrjaði daginn minn á að fara í Hlíðarbæ, þar sem veislan var haldin, með eitt stykki Marge Simpson kaka. Eftir það fór ég upp í Vestursíðu til að greiða Svandísi & farða Ólínu & tengdamömmu. Svo brunaði ég heim & gerði liðið klárt fyrir kirkjuna. Börnin voru mjög góð í kirkjunni & svaf Jón Páll mest allan tímann
Svo eftir kirkjuna brunuðum við til að opna Hlíðarbæ & gera klárt, allt gekk vel fyrir sig & þar sem ég eyddi mestum tíma í hlaup þá voru fætur mínir orðnir frekar lúnir í lok dags. Gengum svo frá eftir veisluna & vorum komin upp í Vestursíðu um 8 leytið & eyddum kvöldinu með fjölskyldunni. Komum þreytt heim um 11 leytið & krakkarnir sofnuðu í bílnum á leiðinni heim
Ólína fékk fullt af fallegum gjöfum & ágætan slatta af peningum einnig
Voða ánægð með allt saman
Jói var orðin ágætur á laugardeginum & mætti í fermingu systur sinnar en var orðinn frekar slakur á sunnudeginum. Hann er ennþá veikur, er ekki enn orðin hitalaus & er stokkbólgin, sést meira að segja utan á honum öðru megin á hálsinum. Hann leggur bara af & er núna á einni viku búin að missa um 6 kg
Hann er að fara tala við lækninn aftur núna á eftir til að vita hvort eitthvað sé hægt að gera en hann hefur bara verið heima í móki & ekki hægt að ná miklu sambandi við kappann síðustu daga
Svona í lokin þá er ég búin að setja inn 110 myndir á barnaland frá fermingunni hennar Ólínu, endilega kíkkið á þær, set svo inn í kvöld inn í vefdagbókina þeirra. Jæja best að hlusta áfram á sálfræðikennarann minn tala um minni
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
268 dagar til jóla
Tenglar
Fallegu börnin
- Fallegu börnin mín Barnalandsíðan okkar
- Helgi Þór Andrésson Sonur Andrésar, bróður Jóa & Hafdísar
- Einar Geir Ingólfsson Sonur Hafdísar svilkonu minnar
- Ivan Freyr Lucic Sonur Anítu frænku minnar & Davors
- Birna Marija & Emilia Hrönn Dætur Davors hennar Anítu
- Katrín Sól Pálsdóttir Dóttir Halldóru vinkonu & Palla
- Íris Hrönn Káradóttir Dóttir Ástu vinkonu & Kára
- Karel Bergmann & Helgi Synir Dóru frænku Jóa & Gumma
- Davíð, Sæþór & Arnar Helgi Synir Dísu frænku Jóa & Kristján
- Ísafold Kelley Dóttir Siggu & Jesse
- Emil Ingi Gunnlaugsson Sonur Kristbjargar & Gulla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar