Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Þetta blogg er tileinkað þér elsku Guðbjörg mín

Já þetta blogg ætla ég sko að tileinka vinkonu minni henni Guðbjörgu en það verður stutt & laggott svo SUMIR hafi nú tíma til að lesa það Whistling Nefni engin nöfn Halo 

Óhætt er að segja að það sé alveg nóg að gera á þessum bæ, ég lít varla upp úr skólabókum eða tölvunni minni, endalaus próf & verkefni GetLost Sem ég ætla ekki að þreyta ykkur á með að telja það upp núna Wink Ég vil svo þakka þeim sem hefur séð til þess að ég vaknaði með hita í morgun, kærlega fyrir, það var alveg yndislegt eða þannig Sick Mætti samt í verkefnavinnuna mína í dag kl.16 & var komin heim um kl.19.

Ég vil einnig votta Hafdísi & sonum & fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúðarkveðjur en Bragi bróðir Ólu ömmu minnar lést í gærmorgun aðeins 67 ára gamall að aldri. Honum verður sárt saknað & er hugur minn hjá þeim öllum, þar með bræðum hans & svo ömmu minni Heart 

Ætla ekki að blogga mikið núna, geri það bara oftar & minni lesning, að beiðni Whistling Þið sem viljið svo vita einhverjar fréttir af krökkunum mínum þrem, þeir kíkja í vefdagbókina þeirra á barnalandi sem er nýuppfærð í kvöld & myndirnar sem eru í nýju albúmi, febrúar II en þar eru myndir ekki bara af krökkunum heldur allri fjölskyldunni. Þar eru myndir af meðal annars afmæli Möggu tengdó Grin Þeir sem vita ekki slóðina en vilja kíkka þá er hún www.barnaland.is/barn/66675 & er síðan læst en verið óhrædd að biðja um lykilorðið ef þið vitið það ekki, sendið mér bara póst Grin

Kveðja frá skólanördinu W00t


Fyrsta færslan á nýju bloggi

Jæja gott fólk

Ákvað núna í dag að prufa að stofna mitt eigið blogg frá grunni, hitt bloggið okkar var upphaflega Jóa blogg & varð svo að mínu seinna meir Grin Núna langaði mig að prufa hvernig þetta blogg virkar & athuga hvort að verður meira um að fólk fari á það, lesi & kannski kommenti, maður veit aldrei Grin Jæja ætla ekki að hafa fyrstu færsluna lengri en ætla að prófa fyrst um sinn að blogga bara hér um allt milli himins & jarðar, hvort sem er fjölskyldu eða bara það sem mig langar til að segja Whistling 

Dagga


Höfundur

Dagbjört Pálsdóttir
Dagbjört  Pálsdóttir
Akureyringur en fyrst & fremst móðir þriggja yndislegra barna, gift yndislegum manni, sálfræðinemi, sjúkraliði & finnst mjög gaman að elda góðan mat & baka. Þeir sem vilja hafa samband við mig geta sent mér póst á daggapals@internet.is

271 dagur til jóla

Nýjustu myndir

  • Elín í segulómun
  • Systkinin á aðfangadag
  • Elín Alma afmælisstelpa
  • Elín afmælisstelpan
  • Á skagaströnd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband