Gott að blogga í afbyggingu

Jebb það er ótrúlega gott að blogga í afbyggingu, ég geri mjög margt í þeim tímum, hendi inn á barnaland, skrifa í vefdagbók krakkana, blogga, rápa á barnalandssíðum o.fl Tounge Þetta eru hreinlega þeir tímar sem ég get ekki haldið einbeitningu enda verið að tala um eitthvað sem mér er ekkert sérstaklega hugfangið, stjórnmál, stríð, efnahagsmál & það allt á ensku Whistling Dead boring.....Sleeping Hef samt ekki áhyggjur af áfanganum, hef náð ágætum einkunnum þrátt fyrir allt en við erum samt að tala um næstum 3 klst af tíma sem ég nýti í tölvumál mín Grin En já það eru semsagt komnar nýjar myndir inn á barnaland Wink Kíkkið á þær áður en ég hendi svo fleirum inn eftir helgina Smile

Ekki mikið að frétta, ég búin að liggja fyrir síðustu daga með hita & verki, maga & hausverki, mjög skemmtilegt GetLost Komin á ról & er svona sæmileg en nú er bara álagið í skólanum að fara segja til sín, hrikalega mikið að gera Pinch Í stuttu máli þá er verkefnaskil hjá mér í upplýsingarýni næsta fimmtudag, tek 2 hlutapróf í sálfræði næsta föstudag, svo er síðasta hlutaprófið í aðferðarfræði 22.apríl & einnig skil á einstaklingsverkefninu í þeim áfanga, lokaprófið í afbyggingu 25.apríl svo nóg er að gera Errm Svo eru lokaprófin eftir, sjúkraprófin & skil á vettfangsskýrslunni svo ég verð á fullu fram að því að ég byrja að vinna 12.maí Crying

Svo er það bara kjúklingur í kvöld ásamt Simpson, Bandinu hans Bubba & kannski myndinni sem er á eftir með smá lærdóm & poppi, hver veit Wink Er að ýta á foreldra mína um að ég fái að moka pallinn hjá þeim til að eiga möguleika á að fá þau til að grilla með okkur um helgina, veit ekki hvað verður Smile Okkar grill er ónýtt & ætlum við ekki að kaupa fyrr en í sumar, kannski í næsta mánuði, sjáum til bara þar sem við ætluðum að fjárfesta líka í tengdamömmuboxi, hjólum & tjaldi Wink

Hafið það gott um helgina elskurnar & njótið þess að vera til Kissing

Dagga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja skordal

Hafðu ljúfa helgi elskuleg

Brynja skordal, 11.4.2008 kl. 11:26

2 Smámynd: Páll Jóhannesson

Mokið - mokið - mokið meiri snjó

Páll Jóhannesson, 11.4.2008 kl. 12:14

3 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Dagga mín ef þú færð ekki nóga útrás við mokstur á sólpalli pabba þíns máttu alveg moka sólpallinn minn líka. Þú varst að tala um tjald, við eigum 5 manna hústjald sem þú getur fengið hvenær sem er. Við afi þinn erum hætt að sofa í tjaldi.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 11.4.2008 kl. 14:16

4 Smámynd: Dagbjört  Pálsdóttir

Takk amma mín, gæti vel verið að ég þiggi það hjá þér í sumar að fá lánað tjaldið  Fengum það hjá ykkur síðasta sumar & var voða gott að vera í því

Dagbjört Pálsdóttir, 11.4.2008 kl. 19:35

5 Smámynd: Hrönn Jóhannesdóttir

Dagga mín passaðu að fá manual með tjaldinu 

Hrönn Jóhannesdóttir, 12.4.2008 kl. 10:43

6 Smámynd: Páll Jóhannesson

Rétt Hrönn! það hafa margir lent í kröppum dansi við að koma upp þessu ,,fjölbýlis-hústjaldi" þeirra sem er jú gott þegar það er komið upp

Páll Jóhannesson, 12.4.2008 kl. 11:15

7 Smámynd: Dagbjört  Pálsdóttir

Við fengum nú að vísu ekkert manual með þegar við fengum það síðasta sumar en náðum nú samt að koma því upp á um 15 mín  Er ekki alltaf sagt líka að æfingin skapi meistarann  Jói var nú nefnilega einn af þeim sem hjálpuðu til við þau ösköp að koma því upp árið 2001 þegar fjölskyldumótið var haldið í bústaðnum hans Dóra

Dagbjört Pálsdóttir, 12.4.2008 kl. 23:04

8 identicon

haha fólk sem vill fá það tjald er ekk í lagi, ég man enn eftir því á fjölskyldumótinu í skagafirði fyrir 100 árum síðan (bakkaflöt minnir mig) þá var amma og afi að reyna að tjalda því og við Sölli að horfa á og einhverjir túristar að reyna að hjálpa þeim og þetta var svo fyndið en honum afa þótti það ekki fyndið:) en við sölli skemmtun okkur ágætlega við að horfa á ósköpin:) kveðja að sunnan.

Ólöf (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dagbjört Pálsdóttir
Dagbjört  Pálsdóttir
Akureyringur en fyrst & fremst móðir þriggja yndislegra barna, gift yndislegum manni, sálfræðinemi, sjúkraliði & finnst mjög gaman að elda góðan mat & baka. Þeir sem vilja hafa samband við mig geta sent mér póst á daggapals@internet.is

240 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • Elín í segulómun
  • Systkinin á aðfangadag
  • Elín Alma afmælisstelpa
  • Elín afmælisstelpan
  • Á skagaströnd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 1209

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband