16.4.2008 | 10:25
Crazy days
Óhætt að segja að þetta séu frekar bilaðir dagar & hlakkar mig mjög til eftir síðasta prófið þann 5.maí þó svo ég þurfi í endurtökupróf í lok maí Er að skila stóru vekefni um dylskynjun á morgun í upplýsingarrýni, 2 hlutapróf í sálfræði á föstudag, aðferðarfræðipróf á þriðjudag ásamt skilum á spss tölfræðiverkefni sama dag & fyrsta stóra prófið á föstudaginn 25.apríl í afbyggingu Nóg að gera næstu daga & vikur hjá mér
Höfðum það bara fínt um helgina. Ég fékk mér göngutúr með krakkana á laugardeginum til mömmu & pabba þar sem okkur var boðið í hádegismat, kjúklingapottrétt, ofboðslega góður Svo tók pabbi fram grilltengurnar & grillaði dásamlegan mat um kvöldið, ekki lélegt það Eftir matinn fórum við upp í Vestursíðu til tengdó & eyddum kvöldinu með þeim, fram til um kl:23 & það voru sko þreytt börn sem fóru í rúmið það kvöld eftir ísát & dekur hjá ömmu & öfum þann daginn Á sunnudeginum skrapp ég upp í Vestursíðu til að taka viðtal við tengdaforeldra mína & á meðan fóru stelpurnar upp í kjarnaskóg með Ólínu & Jón Páll á rúntinn með Svandísi & græddi shake hjá henni Fórum svo heim þar sem allir fótboltagestirnir voru farnir eftir fótboltaleiki dagsins
Svo í gær lenti ég aftur í kattaóféti en ég gómaði einn inni hjá mér & ætlaði aldrei að ná honum út, var í stökustu vandræðum að ná honum Ég tók eftir því að hann var með ól en ekkert stóð á henni en ég var ákveðin í því að fara með hann þangað sem hann byggi & ætlaði sko að tala við eigandann Loksins þegar ég náði taki á honum þá labbaði ég með hann út & henti honum út 6 alla leiðina að dyrinni reyndi hann að bíta mig & klóra & náði sko að klóra mig vel á hendinni Verkefnið mitt í dag verður að klóra alla glugga að utan, nota kannski bara líka sítrónusafa, ég þoli þetta ekki
Er ekki sumarið svo að koma bara, Jói búin að vera vinna lengur þessa vikuna þó svo þetta sé ekki hans vika til kl: 18, það hefur bara verið svo mikið að gera, allir að skipta yfir á sumardekkin Núna er einmitt bíllinn okkar þar að fá sumardekkin sín Eins gott að það byrji ekki að snjóa um helgina eða eitthvað Þetta er búið að vera indælt, það að snjóinn sé að fara, ég hef nýtt undanfarna daga & hengt þvottinn minn út á snúru, alveg yndislegt að geta gert það Langar svo að minna aftur á myndirnar á barnalandi en ég hef tekið eftir því að fullt að fólki er búið að skoða þær en enginn búin að kvitta eftir að nýju myndirnar komnar, pínu svekkt Langar svo í lokin að senda baráttukveðjur upp á barnadeildina til Helga Þórs & fjölskyldu hans þar sem hann var lagður þar inn í gær en hann var búinn að vera veikur lengi & ekkert geta borðað, ja haldið neinu niðri síðan á föstudag Er komin með næringu í æð & vonandi fer honum nú að batna eftir þetta
Hafið það gott, best að halda áfram að læra
Dagga
33 dagar til jóla
Tenglar
Fallegu börnin
- Fallegu börnin mín Barnalandsíðan okkar
- Helgi Þór Andrésson Sonur Andrésar, bróður Jóa & Hafdísar
- Einar Geir Ingólfsson Sonur Hafdísar svilkonu minnar
- Ivan Freyr Lucic Sonur Anítu frænku minnar & Davors
- Birna Marija & Emilia Hrönn Dætur Davors hennar Anítu
- Katrín Sól Pálsdóttir Dóttir Halldóru vinkonu & Palla
- Íris Hrönn Káradóttir Dóttir Ástu vinkonu & Kára
- Karel Bergmann & Helgi Synir Dóru frænku Jóa & Gumma
- Davíð, Sæþór & Arnar Helgi Synir Dísu frænku Jóa & Kristján
- Ísafold Kelley Dóttir Siggu & Jesse
- Emil Ingi Gunnlaugsson Sonur Kristbjargar & Gulla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mjá alltaf í kisunum Dagga mín Mjá
Páll Jóhannesson, 16.4.2008 kl. 23:56
Alltaf nóg að gerða. Nú er ég mikið kattamennska enn skil alveg þitt vandamál. Prófa með píparmyntu og lavandel olíu, líka edikolía hjálpir. Kveðjur frá okkur.
Margith Eysturtún, 17.4.2008 kl. 18:00
Alltaf nóg að gera á stórum heimilum Annað en hérna ekkert að gera nema njóta veðurblíðunar Sendum okkar bestu batakveðjur til Helga Þórs.
Hrönn Jóhannesdóttir, 18.4.2008 kl. 16:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.