25.4.2008 | 12:12
Gleðilegt sumar
Ein aðeins of sein í að óska gleðilegu sumari en læt það flakka samt & þakka ykkur öllum fyrir veturinn sem nú er liðinn & vona að sumarið verði ykkur öllum gott & hreint yndislegt Ætla nú ekki að fara djúpt í fréttir liðinnar viku en það hefur sko verið yfirdrifið að gera Svo eitthvað sé nefnt þá voru fimleikaæfingar, próf, skilaverkefni ásamt einni heimsókn á sjúkrahúsið með litla strákinn minn Ekkert alvarlegt en það fór að leka blóð á leikskólanum úr "litla vininum" & kom svo í ljós að það hefði verið dáltil sprunga þar á ferð sem blóðið hefði lekið úr Þeir á sjúkrahúsinu vildu náttúrulega bara fullvissa sig um að þetta væri ekki komið frá þvagrásinni & nú er bara skol þarna 2x á dag svo hann verði fínn Finnur stundum til við þvaglát & svona en það er nú bara eðlilegt.
Ég er semsagt búin að skila þeim verkefnum sem á að skila fyrir utan vettfangsskýrsluna mína sem ég á að skila 9.maí. Var í prófi í morgun í afbyggingu, ekki uppáhaldsfagið mitt en gekk bara okay þrátt fyrir það Svo núna fer ég á fullt í að læra fyrir stóra sálfræðiprófið mitt sem er upp úr öllu efninu & er næsta miðvikudag, svo nú verður tíminn nýttur í það Ætla samt ekkert að læra í dag, ætla að laga til, baka brauð, elda góðan mat & vera með krökkunum mínum Dagurinn í gær fór nú líka pínu í að vera með familíunni en við fórum um hádegið í Brynju & fengum okkur hádegismat, ís Tengdaforeldrar mínir & Ólína komu með okkur áður en þau lögðu af stað suður Ólína er að fara í skoðun í dag hjá hjartalækninum. Gangi þér vel elskan Svo var farið í búðir til að versla smá sumargjafir & svo í sólina til mömmu & pabba á pallinn Svo var grillað um kvöldið dýrlegt læri & meðlæti svo maður fór saddur heim um hálf átta í gær Svo tók bara lærdómur við um kvöldið, snemma að sofa & vaknað fersk í morgun um hálf sex til að læra aðeins meira Fór svo upp á Hlíð áðan að skrifa undir ráðningarsamninginn minn & komst þá á hreint að ég verð trúlega mestmegnis á næturvöktum því ég þurfti að gefa svar því, þar sem þá er ég ráðin með ábyrgð & auðvitað meiri laun Fínt fyrir námsmann
Svo er bara að skella sér á lokahóf körfuboltans annað kvöld & skreppa út í Hrísey á sunnudag í skírn til Gunna & Berglindar Ætla ekki að setja inn fleiri apríl myndir á barnaland fyrr en eftir skírnina á sunnudaginn Fólk hefur nú líka ekki verið neitt ofboðslega duglegt að láta vita af sér þar eftir að maður er búinn að setja inn myndir svo ég er þá ekkert að flýta mér heldur
Ætla ekkert að ræða um þessi mótmæli hér enda myndi þá bara allt leysast út í vitleysu, þori ekki öðru en að hafa þá skoðun út af fyrir mig
Í lokin vil ég senda hlýjar kveðjur til Ivans litla frænda & fjölskyldu hans þar sem litli kúturinn brenndist pínu illa á fótum eftir að heitt vatn helltist á hann hjá dagmömmunni sinni Sendi ykkur þúsund kossa & knús frá okkur elskurnar
Sól & sumarkveðjur
Dagga
33 dagar til jóla
Tenglar
Fallegu börnin
- Fallegu börnin mín Barnalandsíðan okkar
- Helgi Þór Andrésson Sonur Andrésar, bróður Jóa & Hafdísar
- Einar Geir Ingólfsson Sonur Hafdísar svilkonu minnar
- Ivan Freyr Lucic Sonur Anítu frænku minnar & Davors
- Birna Marija & Emilia Hrönn Dætur Davors hennar Anítu
- Katrín Sól Pálsdóttir Dóttir Halldóru vinkonu & Palla
- Íris Hrönn Káradóttir Dóttir Ástu vinkonu & Kára
- Karel Bergmann & Helgi Synir Dóru frænku Jóa & Gumma
- Davíð, Sæþór & Arnar Helgi Synir Dísu frænku Jóa & Kristján
- Ísafold Kelley Dóttir Siggu & Jesse
- Emil Ingi Gunnlaugsson Sonur Kristbjargar & Gulla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gleðilegt sumar Dagga mín og takk fyrir veturinn. Sumarkveðjur til fjölskyldunnar.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 25.4.2008 kl. 13:25
Hæ Dagga min og sumarkveðjur til ykkar Af Ivani er það að frétta að hann fór á endurkomu á slysó núna eftir hádegi Það veður athugað betur á mánudag með hann en þeim grunar að það geti verið á tveim stöðum hjá honum þriggja stiga bruniVonum bara að allt fari vel að lokum
Hrönn Jóhannesdóttir, 25.4.2008 kl. 15:16
Hæ hæ og gleðilegt sumar og takk fyrir kveðjuna
Kv úr Njarðvík
Aníta (IP-tala skráð) 27.4.2008 kl. 09:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.