28.3.2008 | 09:21
Ferming Ólínu á morgun
Já þá er bara að koma að þessu, Ólína okkar fermist á morgun Allir hjálpast að við að gera allt klárt en tengdaforeldrar mínir eru alveg ótrúlega rólegir yfir þessu öllu, ekkert stress Fórum í gærkveldi & gerðum salinn klárann, stilltum upp borðum, skreyttum & gerðum eins margt & við gátum fyrir stóra daginn Ólína hafði sko mikla ánægju af þessu öllu & ljómaði alveg af henni Já þetta tókst henni, ná heilsu & koma til Íslands til að fermast Ekkert minna verður að gera í dag en ég mun gera 2 stk stórar smurbrauðstertur & Jói átti að gera rice krispies turninn sinn Dagurinn í gær var heldur erfiður þar sem eiginmaður minn tók upp á því að veikjast, ekki gott Þetta byrjaði vísu aðeins á miðvikudagskvöldið, var að drepast í rifbeinunum, eins & hann væri marinn, hefði verið laminn illilega Hann tók inn verkjalyf um kvöldið & fór snemma í rúmið. Þegar hann vaknaði um morguninn var hann ekkert skárri & ákvað að fara ekki í moggann & ekki í vinnu, ja allaveganna fyrir hádegið eins & hann sagði það þegar ég kom heim úr skóla um 11 leytið var minn hálf meðvitundarlaus í sófanum sofandi & ekki í neinu ástandi til að mæta í vinnu eftir hádegið Ég fór svo í Ultratone & skildi lasarusinn eftir heima. Þegar ég kom heim um 6 leytið þá var minn steinsofandi & gjörsamlega út úr kú Nú var hann farinn að finna allrækilega til í hálsinum & gat ekkert borðað, lá bara fyrir Hann áttaði sig strax á því að hann væri trúlega kominn með streptakokkasýkingu & hringdum við strax í mömmu hans sem átti afgang af sýklalyfi, sama & hann hefur notað við þessu. Hann talar svo við lækni núna á eftir til að fá sýklalyf & þannig ætti hann að vera öruggur með að geta mætt í fermingu systur sinnar Hann má ekkert koma nálægt henni núna á meðan hann er á þessu stigi, þarf að vera búin að vera á sýklalyfi í að minnsta kosti 24 klst til að smita ekki Vona að hitinn fari líka lækkandi hjá honum því hann er gjörsamlega vita gagnlaus svona veikur, bara hálf meðvitundalaus & ekki á besta tímanum
Elín er svo að fara í afmæli beint eftir skóla í dag & verður þar til hún fer í fimleikana, hlakkar mikið til Jói verður semsagt heima í kvöld en það var ekki planið, hann átti að vera á Illugastöðum á vinnufund á vegum samfylkingarinnar en hann getur alveg gleymt því núna Sit núna í tíma, afbyggingu, ekki skemmtilegasta fagið, hlusta á ítalskan kennara tala ensku um fyrri heimstyrjöldina & fasisma, jeiii, einmitt mitt áhugasvið eða hitt þó heldur
Jæja skrifa mjög fljótt aftur & mun reyna að henda strax á sunnudaginn inn myndum af fermingunni inn á barnaland Þangað til næst ......
Dagga
33 dagar til jóla
Tenglar
Fallegu börnin
- Fallegu börnin mín Barnalandsíðan okkar
- Helgi Þór Andrésson Sonur Andrésar, bróður Jóa & Hafdísar
- Einar Geir Ingólfsson Sonur Hafdísar svilkonu minnar
- Ivan Freyr Lucic Sonur Anítu frænku minnar & Davors
- Birna Marija & Emilia Hrönn Dætur Davors hennar Anítu
- Katrín Sól Pálsdóttir Dóttir Halldóru vinkonu & Palla
- Íris Hrönn Káradóttir Dóttir Ástu vinkonu & Kára
- Karel Bergmann & Helgi Synir Dóru frænku Jóa & Gumma
- Davíð, Sæþór & Arnar Helgi Synir Dísu frænku Jóa & Kristján
- Ísafold Kelley Dóttir Siggu & Jesse
- Emil Ingi Gunnlaugsson Sonur Kristbjargar & Gulla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
vonandi gengur allt vel hjá ykkur og skvísan njóti þess að láta ferma sig og vonandi verður bóndin þinn orðin ról fær til að taka þátt í gleðinni með ykkur hafið ljúfa helgi
Brynja skordal, 28.3.2008 kl. 16:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.