Færsluflokkur: Bloggar
1.7.2008 | 00:30
Stolt móðir af stelpunum sínum
Jæja þá er maður komin heim af króknum eftir velheppnaða keppnisferð Ég keyrði á föstudeginum með mömmu & stelpunum á Sauðárkrók & fórum við beint heim til Mörtu & Jónsa Fengum góðan mat hjá Mörtu & svo fór ég með stelpurnar í Árskóla þar sem þórsararnir gistu Stelpunum fannst það sko ekki leiðinlegt að hitta stelpurnar úr liðinu & fá að gista með þeim
Á laugardeginum voru fjórir leikir spilaðir hjá stelpunum, sá fyrsti var kl.10:30 við ÍR2 & unnu þær 4-0. Annar leikurinn var á móti Völsungi en þar unnu Völsungsstelpur 1-0. Þriðji leikurinn var á móti KA en það var auðvitað sætasti sigurinn en hann unnu þórsstelpurnar 1-0 Síðasti leikur dagsins var á móti Tindastól en þar varð markalaust jafntefli Stelpurnar voru þreyttar & ánægðar með daginn & var margt brallað hjá þeim um kvöldið eins & kvöldvaka Jói, Jón Páll, pabbi & Sædís systir komu svo á krókinn rétt yfir kl.20 & borðuðu með okkur þetta dýrindis læri að hætti Mörtu en Jónsi átti afmæli Skruppum upp í skóla til stelpnanna um kvöldið að kyssa þær góða nótt & leyfa Jóni Páli, pabbanum & Sædísi aðeins að kíkka á þær systur, höfðu samt engan tíma í eitthvað svona Fyrr um daginn komu Nonni, Magga, Svandís & Ólína á krókinn til að ná einum leik með stelpunum & náðu þau KA leiknum góða Þau komu færandi hendi & gáfu stelpunum sitthvort Þórsbuffið & var það strax sett á þær & notað í fyrsta skiptið í KA leiknum Yndislegur dagur þrátt fyrir óskemmtilegt veður en maður þakkaði bara fyrir það að hann hélst þurr yfir daginn Í ljósi góðs árangurs hjá stelpunum fyrr um daginn komst í ljós um kvöldið að þær myndu keppa daginn eftir í A-riðli um 1-5 sæti en ekki B-riðli um 5-10 sæti & urðu foreldrar þá stressaðir þar sem það væru betri lið sem myndu takast á við litlu stelpurnar okkar en auðvitað bara stoltur yfir frábærum árangri þar sem þær voru nú ekki nema 11 talsins
Á sunnudeginum var byrjað að keppa kl.9 um morguninn & var þessi nístingskuldi & töluverður vindur & ekki skemmtilegt keppnisveður Þórsstelpurnar byrjuðu á að taka á móti ÍR 1 & töpuðu þær á móti þeim 8-0 & sjálfstraustið hreinlega gufaði upp enda mjög erfitt lið að taka á móti enda unnu þeir mótið. Svo strax á eftir kl.10 tóku þær á móti Tindastól & töpuðu 4-0. Þarna voru þær gjörsamlega niðurbrotnar & sjálfstraustið ekki mikið Í hádeginu komu þær svona fílsterkar til baka & unnu Völsung 4-0, stórglæsilegur leikur hjá þeim stelpum Svo síðasti leikurinn var á móti Breiðablik & náði Breiðablik að skora á síðustu mínútunum en þá voru sko Þórsstelpurnar gjörsamlega búnar á því en þær töpuðu 1-0 á móti Breiðablik. Engan að furða að stelpurnar væru orðnar þreyttar enda búnar að spila 8 leiki á 2 dögum í þessu ömurlega veðri Þær eiga sko hrós skilið þar sem vindurinn á sunnudeginum virtist ekki bara feykja boltanum út & suður heldur líka þeim sjálfum
Verðlaunaafhendingin var svo kl.15 & tóku Þórsstelpurnar við verðlaunapening fyrir 4.sæti en það voru 10 lið sem tóku þátt í 7.flokk kvenna Svo var drukkið hjá Mörtu & Jónsa áður en haldið var heim enda allir orðnir vel uppgefnir eftir allt saman & var bara legið í leti allt sunnudagskvöldið Þær fóru seint að sofa þar sem þær höfðu náð sér í kríu fyrr um daginn svo ég leyfði þeim að taka sér frí um morguninn á æfingu & leyfði þeim bara að sofa sem þær gerðu Svo fara þær ferskar á æfingu í dag, þar sem þetta er skrifað eftir miðnætti Ég ætla svo að reyna þrífa íbúðina á morgun & miðvikudaginn & hafa það gott þar sem ég er að fara að vinna á fimmtudagsmorgunn, tek þá morgunvakt & svo 5 næturvaktir áður en ég fer aftur í frí en þetta verður aðallega strembið þar sem ég sé manninn minn ekkert þessa dagana sökum Pollamótsins en ég fæ að sjá hann á sunnudaginn Svo ætla mamma & pabbi að aðstoða mig aðeins svo ég fái aðeins að sofa eftir næturvaktirnar Svo er Jón Páll að fara í sumarfrí í 4 vikur & er síðasti dagurinn núna á föstudaginn, honum mun sko ekki leiðast það þar sem drengurinn er óskaplega heimakær Svo er bara ættarmótið hjá Jóa um þarnæstu helgi í Árskógi & þá verður bara tjaldað & haft gaman af Set hér svo inn eina mynd síðan um helgina & ef þið viljið skoða fleiri myndir þá er ég búin að setja inn um 100 myndir inn á barnalandssíðuna okkar http://www.barnaland.is/barn/66675 endilega kíkkið & kvittið
Jæja þar til næst elskurnar, hafið það sem allra best
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.6.2008 | 15:21
Farin á krókinn
Hæ hæ
Langaði bara að henda inn nokkrum línum en nú erum við að fara leggja í hann á Sauðárkrók þar sem stelpurnar mínar eru að fara keppa á sínu fyrsta fótboltamóti, Landsbankamótinu Ég ætla að keyra þangað með þeim & ætlar móðir mín að koma með okkur Á morgun eða annaðkvöld munu svo Jói, Jón Páll, pabbi & Sædís mæta á svæðið til að taka þátt í þessu með okkur Stelpurnar orðnar virkilega spenntar & fengu þær einmitt í gær liðsgalla á sig, keppnistreyjur, stuttbuxur, sokka, vindjakka & fl. en sumt voru fyrirframafmælisgjafir þar sem öll herlegheitin kosta sitt Ætla setja hérna inn mynd af þeim þar sem þær voru að máta í gærkveldi áður en ég fór að merkja allan fatnað & dót sem tekið verður með á krókinn.
Þetta eru svo númerin þeirra en þau voru valin þannig að afmælisdagur þeirra var notaður Vantar bara keppnisskóna & legghlífarnar sem við nenntum nú ekki að setja þær í þegar herlegheitin voru mátuð
Látum þessa flottu fyrirsætumynd duga í bili, setjum svo inn fullt af myndum þegar við komum heim á sunnudagskvöldið
Hafið það gott um helgina
Keppniskveðja frá þórsurunum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.6.2008 | 00:35
8 ár í hjónasælu
Ákvað að skella inn einni stuttri færslu áður en ég færi í rúmið en nákvæmlega fyrir 8 árum síðar var ég enn á fótum & Jói að fara þrífa bílinn fyrir stóra daginn Fyrir 8 árum á Jónsmessu giftist ég manni mínum & er enn með honum í dag, sem virðist vera nokkuð merkilegur hlutur Mér finnst ennþá jafn asnalegt að heyra spurninguna " Eigið þið öll börnin saman " ? Já það er kannski ekki algengt nú á tímum en það gerist jú víst Þetta hefur verið ótrúlega fljótt að líða þessi 8 ár en ég ætla ekkert að ljúga & segja að allt hafi gengið eins & dans á rósum Við höfum fengið okkar skerf af erfiðleikum & komið saman standandi úr þeim, betri fyrir vikið & vitrari (vonandi) Ég segi að til að hlutirnir geti virkað í hjónabandi þurfa að ríkja samheldni, traust, ást & virðing. Að vísu þeir sem eru í sambandi vita að málamiðlanir er einnig mjög stór hlutur í þessu.
Jói minn, til hamingju með daginn okkar ástin mín & hlakka til að eiga með þér enn fleiri ár til viðbótar Vil ekki hafa þetta væmnara en koss & knús elskan til þín
Til hamingju með daginn Svandís mín & hlökkum til að sjá þig í dag
Jæja best að drífa sig í rúmið, morgunvakt í fyrramálið & svo næturvakt um kvöldið
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.6.2008 | 18:28
Komin heim
Jæja þá er komin tími á smá uppfærslu þar sem maður er komin heim úr útilegunni Ekki gerðist nú svo mikið síðan síðast var bloggað, ég naut þess að vera í vaktafríi með krökkunum & kallinum, fengum ágætis veður & vorum þá daga í garðinum Ég fór svo að vinna á föstudagskvöldinu & var að vinna næstum straight til mánudagsmorgun Við vorum svo heppin að það var ein í partýhópnum hjá Jóa sem bauðst til að halda partýið & þáðum við það með þökkum þar sem ég var að vinna bæði á morgunvakt & svo næturvakt þennan dag Ég á náttúrulega frábæra tengdaforeldra sem björguðu okkur með að hafa krakkana yfir nótt svo Jói gæti skemmt sér með fólkinu úr MA á meðan ég var á næturvakt, svo ég fengi líka smá dúr fyrir vaktina Á mánudeginum þegar við vorum að gera okkur klár í útileguna var svona voða hvasst svo við ákváðum að bíða þar til næsta morgun eða um morguninn 17.júní Svo var lagt af stað & ákveðið bara eftir veðurspánni hvert ferðinni væri heitið, fórum bara þar sem veðrið var gott Byrjuðum á Þingvöllum þar sem var yndislegt veður, vorum þar tvær nætur, skoðuðum Gullfoss & Geysi, fórum í sund á Laugarvatni & nutum þess að vera í þessari fallegu náttúruperlu Næst var ferðinni heitið á Snæfellsnesið & tjölduðum við á Stykkishólmi & vá hvað það er fallegt þarna, maður gæti sko alveg sest að þarna Fengum yndislegt veður en ákváðum á leiðinni heim að stoppa á Skagaströnd & hitta Guðbjörgu vinkonu & krakkana hennar, bauð okkur í mat & áttum góða stund með þeim Hittum líka Kæju & fjölskyldu áður en við lögðum í hann & var svo gaman að hitta þau. Komum þreytt heim rétt fyrir miðnætti á föstudagskvöldi & allir sváfu út á laugardeginum
Í gær fórum við svo í sund á Þelamörk, vildum komast áður en henni yrði lokað en hún á að vera lokuð til 1.des frá & með morgundeginum. Fengum yndislegt veður fyrir sundferðina & kom Svandís líka með okkur & höfðum það bara gott Letidagur í dag enda að ná kröftum fyrir vinnudag á morgun. Jói er búin með sitt 2 vikna sumarfrí & byrjar að vinna á morgun & ég er að fara vinna annaðkvöld, þriðjudagsmorgun & svo næturvakt sama kvöld Mamma & pabbi ætla að hafa stelpurnar þá nóttina svo þær þurfti ekki að vakna bara til þess að fara í pössun. Á þriðjudaginn koma svo tengdaforeldrarnir & foreldrar mínir í mat ásamt Svandísi, Ólínu, Sædísi & Sölla þar sem við ákváðum að halda upp á 8 ára brúðkaupsafmælið okkar með þeim & auðvitað afmæli Svandísar
Á föstudaginn höldum við svo á Sauðárkrók þar sem stelpurnar okkar eru að fara keppa á Landsbankarmótinu í fótbolta, voða gaman Verðum þar fram á sunnudag & höfum það bara gott
Jæja læt þetta nægja í bili en það eru komnar nýjar myndir á barnaland, nýtt albúm Júní II með fullt af myndum, endilega kíkkið & kvittið www.barnaland.is/barn/66675
Hafið það gott elskurnar
Dagga & co
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.6.2008 | 13:15
Kallinn kominn í sumarfrí
Vá bara komin vika síðan síðasta blogg en já maður er bara komin á fætur í dag en það var nú eiginlega ekki létt því þegar maður er búin að vera á næturvöktum þá er erfitt stundum að snúa dæminu við en ég var nú vöknuð um tíu leytið í morgun Gat bara ekki með nokkru leyti sofnað í gærkveldi enda sofið langt fram eftir eftir næturvaktina svo ég prjónaði bara Ég er semsagt komin í pínu vaktafrí, kom heim af síðustu vaktinni kl.8 á mánudagsmorgun & fer aftur að vinna kl.15 næsta föstudag Jói minn kominn í sumarfrí en það er orðið SVO langt síðan hann hefur tekið sér almennilegt frí & er hann núna bara heima með okkur Nýtir svo tímann á meðan stelpurnar eru á fótboltaæfingu frá 10-12 í að vinna í pollamótinu en það er svona aukavinnan hans
Ekki mikið búið að gerast á þessum bæ nema að á miðvikudaginn var fyrsta fótboltaæfingin hjá stelpunum & fannst þeim það ekki leiðinlegt að æfa með öllum stelpunum í Boganum Svo þurfti náttlega að fara & versla á stelpurnar það sem þurfti, þórspeysurnar, legghlífar & gervigrasskó Svo var allur dagurinn nýttur í fótbolta í nýju græjunum Mamma & pabbi fóru svo suður á miðvikudaginn & út til Þýskalands á fimmtudaginn & hafa þau bara haft gaman þarna úti Ég var að vinna fimmtudags- & föstudagsmorgun & Jói auðvitað líka svo Svandís & Ólína leyfðu stelpunum að gista hjá sér, hjá Svandísi þessar tvær nætur svo við þyrftum ekki að vekja þær eldsnemma til að koma þeim til þeirra um morguninn Það var sko dekrað við dömurnar á meðan múttan var að vinna Á laugardeginum fóru dömurnar mínar í kvennahlaupið þar sem ég var að vinna & fór Ólína líka svo þær þyrftu ekki að ganga einar en Jói var með einhvern derring að vilja ekki sem karlmaður ganga en hann mætti samt & tók myndir Helgin hjá mér fór í næturvaktir & svefn & örlítinn bakstur & næsta helgi verður nákvæmlega eins en samt verður fyrsta "partýið" haldið í íbúðinni okkar á laugardagskvöldið en Jói mun eiga 10 ára stúdentsafmæli á þriðjudaginn næsta Svo nokkrir úr bekknum hans ætla að koma saman & það hérna hjá okkur yfir grilli & skemmtun, bara fjör en ég staldra við þangað til ég fer á næturvaktina mína Svo á sunnudaginn kvöddum við Ólínu en hún var að halda til Danmerkur í tvær vikur þar sem hún ætlar að læra dönsku Svo höldum við upp á það þegar hún kemur til baka en þegar við Jói eigum brúðkaupsafmæli þann 24.júní þá ætlum við að bjóða tengdó, Svandísi, Ólínu & svo foreldrum mínum í mat & þá baka ég köku handa Svandísi minni köku í tilefni dagsins en hún á afmæli þennan dag, hún verður 22 ára & við að fagna 8 ára afmæli
Ætlum svo bara að reyna að skemmta okkur konunglega í sumar, fyrsta ferðalagið sem við förum í 16.júní & verðum í um 7 daga & ætlar Svandís að koma með okkur, þá verður farið bara þangað sem við viljum & allt í útilegu Svo verður ættarmót í Árskógi í Jóa ætt frá 11-13 júlí & mætum við þangað með tjaldið & svo bara það sem við viljum gera Svo má ekki gleyma verslunarferðinni minni til Leicester helgina eftir versló, yndislegt
Hafið það gott elskurnar & svo eru komnar nýjar myndir á barnaland, júní myndir, kíkkið & kvittið www.barnaland.is/barn/66675
Dagga
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.6.2008 | 00:54
Yndislegt líf að vera búin í skólanum
Jæja þá er maður sko loksins búinn í prófum & búin að sóla sig aðeins í góða veðrinu hérna á norðurlandi Síðasti prófið mitt var á fimmtudaginn & fagnaði ég því bara með leti um kvöldið enda gjörsamlega búin á því eftir prófatörnina Á föstudagsmorguninn fór ég svo með stelpunum mínum í Glerárskóla á skólaslitin & fengu þær svo námsmatið sitt, glæsilegt það Glæsilegar umsagnir & einu "einkunnirnar" þeirra var úr stærðfræði & náðu þessar elskur 9 í því, stórglæsilegt Fórum svo í Glerártorg & skoða herlegheitin & það var eins & akureyringar hefðu aldrei haft leikfangaverslun, ekkert smá fjöldi þar á ferð Það eina sem ég keypti þann daginn var eitt fótboltamark svo krakkarnir gætu æft sig hérna heima í fótbolta enda stelpurnar loksins að byrja á morgun, búnar að bíða síðan í september eftir þessu Þær verða semsagt í 7.flokk kvenna & munu æfa á hverjum virkum degi frá kl.10-12 Ólína & Eyrún vinkona hennar, eyddu svo deginum með stelpunum & komu tvær mjög ánægðar skvísur heim seinnipartinn Á föstudagskvöldið fór svo Jói & Sölli bróðir keyrandi, á bíl Svandísar, í Húnaver þar sem einhverskonar vinnufundur ungra jafnaðarmanna var haldin Ekki var nú leiðinlegt hjá okkur um kvöldið þar sem Svandís & Ólína voru hjá okkur frameftir að spila partý & co, voða fjör
Á laugardaginn var bakað um morguninn, svo fórum við Svandís með krakkana í sund í Þelamörk & var sko ekki leiðinlegt Loksins þegar litli kúturinn minn fékkst til að fara í rennibrautina þá hreinlega vildi hann ekki hætta Yndislegt að sjá hann. Eftir sundið var svo haldið upp í Vestursíðu í smá "pikk nikk" þar sem var leiðinlegt veður. Borðað í Drekagilinu um kvöldið þar sem litli kútur var komin með hita eftir allt saman, 38,7 Fórum svo aftur upp í Vestursíðu þar sem tók við náttfata & spilakvöld en strákurinn með hita enn, fór upp í 39,6 & þá fékk ég nóg & gaf honum hitastillandi. Ohh hvað var gaman, allir í náttfötum & spilað partý & co, borðað nammi & snakk & mikið hlegið Jói kom svo í bæinn um kl.00:30 & vorum við ekki komin heim fyrr en um kl.1:30 & allir orðnir dauðuppgefnir eftir daginn
Sunnudagurinn var líka yndislegur, fjölskyldudagur. Fótboltamarkið sett upp í garðinum, göngutúr í Glerártorg, úti allan daginn Jói vann meira að segja bókhaldið sitt úti Svandís besta frænkan skrapp með Ólínu í rúmfó & kom til baka með eitt stykki stóra buslulaug til að nota, geggjað Gallinn var að við áttum ekki slöngu til að geta fyllt laugina svo til að redda okkur þá var notað við bala & fötu til að setja örlítið vatn í hana, svona til að prufa Mikið fjör & mikið gaman með loforði um að kaupa slöngu strax daginn eftir, sem var að sjálfsögðu gert með öllu tilheyrandi
Yndislegt veður hélt svo áfram á mánudaginn en ég átti að vera á kvöldvakt en strákurinn var ennþá drulluslappur, fór ekki í leikskólann svo ég tók mér veikindafrí vegna hans, ekki vel við það en svona er það nú bara Eftir að Ólína var búin í skólanum kom hún beinustu leið hingað með Svandísi & fylltu þær á laugina & fór Ólína & Eyrún vinkona hennar með stelpunum í hana & vildu bara helst ekkert koma upp úr aftur Svandís hafði það nú bara gott í sólbaði á meðan Pabbi kom svo við hjá okkur & setti nýjar lamir á sandkassann svo ég gæti farið að bera á hann & gert hann örlítið huggulegri
Ekki mikið gert í dag nema laga til & svo fengum við heimsókn í morgun, Guðbjörg vinkona með krakkana & gerðum við vöfflur & skruppum aðeins í Glerártorg, voða fjör Mamma, pabbi, Sölli & Sædís komu í mat til okkar í kvöld þar sem þau halda suður á morgun & fara til Þýskalands á fimmtudaginn, æskulýðskórinn að fara syngja Snyrtistofa svo sett upp í kvöld & nokkrar augabrúnir litaðar, vaxaðar & hendur lakkaðar & skreyttar með munstrum
Svo í dag átti hún Sædís vinkona mín afmæli, til hamingju elskan með daginn
Vona að veðrið verði gott á morgun svo ég geti farið með krakkana & Ólínu & Svandísi í húsdýragarð rétt hjá Dalvík & svo í sund til Dalvíkur, vonum að veðurguðirnir verði mér góðir á morgun Fer svo að vinna á fimmtudag & föstudag á morgunvöktum & svo á laugardag á morgunvakt en líka næturvakt en skiptir ekki máli því kallinn er að fara í tveggja vikna sumarfrí eftir vinnu á föstudaginn, lovely Stelpurnar okkar eru sko farnar að telja niður í ferðalagið okkar sem er eftir nákvæmlega 13 daga Bara við, Svandís, bíllinn, tjaldið, góður matur, gott veður & fagra Ísland Ef þið viljið svo skoða fleiri flottar myndir þá eru ein 3 maí albúm inn á barnalandi & eitt svona lok maí, byrjun júní albúm, endilega kíkkið á myndirnar
Jæja búin að skrifa allt of mikið svona í einu. Hafið það gott elskurnar & njótið góða veðursins á norðurlandi & hvar sem þið eruð á landinu
Sól & sumarkveðjur
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.5.2008 | 22:47
Bloggleti eða hvað .......
Úff hvað er langt síðan ég hef bloggað, ég skammast mín eiginlega barasta Það hefur nú bara margt gerst síðan ég bloggaði síðast. Var nú samt bara að hugsa um að stikla á stóru með það fyrst það er svona langt síðan & yrði færslan frekar löng ef ég ætlaði að segja ALLT
Það sem er helst er að ég byrjaði að vinna 9.maí & naut ég þess að slaka aðeins á með krökkunum þangað til. Bróðir minn átti svo afmæli þann 12.maí & var okkur boðið í afmælisdinner til hans. Svo var farið með Elínu Ölmu & hinum í 1.bekk í Kjarnaskóg ásamt fjölskyldum & grillað & haft gaman. Stífar æfingar voru hjá stelpunum í fimleikum nú í maí vegna vorsýningarinnar sem haldin var í Íþróttahöllinni þann 18.maí, glæsileg sýning hjá þeim Afi var heiðraður af þórsurum vegna afreka sinna í kraftlyftingum frá árunum 1979-1991 með glæsilegum skáp sem innihélt verðlaun hans sem verður geymdur í Hamri. Keyptum okkur stórglæsilegt grill & getum ekki hætt, búin að fá fyrstu vinina í grillmat Fórum í grill/eurovision partý með fjölskyldunni & við hjónin skemmtum okkur aðeins lengur áfram með hópnum á meðan krakkarnir fengu að fara heim með Svandísi eftir keppnina. Búin að njóta í botn góða veðursins með að læra úti í grasinu & njóta þess. Fyrsti garðslátturinn búinn & næsti fljótlega aftur. Byrjuð í "prófum" aftur & á eftir tvö próf eftir núna, eitt á morgun & svo á fimmtudaginn. Búin að fá tvær einkunnir 7,5 í afbyggingu 20.aldar & svo 8,5 í eigindlegum rannsóknaraðferðum & er mjög sátt við þær Krakkarnir búnir að fara allir til tannlæknis, stelpurnar búnar í fimleikum þar til í haust, skólaslit hjá þeim á föstudaginn & svo fer fótboltinn að byrja hjá þeim
Jæja ég held að ég sé nú búin að koma svona einhverju frá mér en er pottþétt að gleyma fullt líka en þetta hefur nú bara verið þannig að ég hef hreinlega fengið gubbu við að horfa á tölvuna mína þar sem hún minnti mig of mikið á skólann Er bara búin að njóta þess að gera eitthvað allt annað en að vera í tölvunni & sé ekkert eftir því en núna er ég að komast yfir þetta & get farið að halda blogginu mínu áfram eftir góða hvíld frá tölvunni & von bráðum skólanum líka. Klukkan nákvæmlega 17 á fimmtudaginn verð ég búin í prófum & get farið að gera það sem mig langar að gera, svona meðfram vinnunni Vinnan er bara draumur í dós enda vinn ég nokkrar vaktir & svo komin í frí & vinnuálagið orðið svo mikið minna þar sem við erum fleiri að vinna svo álagið dreifist meira & manni kvíður ekki lengur fyrir að byrja á vinnutörn þar sem það tók mann marga daga að ná sér
Skrifa MJÖG fljótt aftur en ég ætla ekki að setja inn á barnaland nýjar myndir fyrr en á fimmtudagskvöldið kannski en ég er nú samt búin að vera dugleg, komin þrjú maí albúm nú þegar Þar getiði nú fundið myndir af flestu því sem ég var að skrifa um, endilega kíkkið ef þið eruð ekki nú þegar búin að því Jæja ætla að halda áfram að lesa fyrir upplýsingarrýni & ætla að fara í sturtu & snemma í rúmið
Sumarkveðjur úr sólinni
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.5.2008 | 23:58
Prófatörnin búin í bili & fullt af nýjum myndum
Já nú er sko gaman hjá minni, síðasta prófið mitt í gær kl:9 í upplýsingarýni Stelpurnar eiga svo góðar frænkur en Svandís & Ólína tóku þær á föstudagskvöldið & leyfði þeim að gista til að létta á mér Var mikið fjör & gaman þar á bæ enda voru þær að gista í fyrsta skiptið heima hjá Svandísi Ég var einmitt í prófi á laugardaginn kl:14 & ákvað að læra svo ekkert eftir prófið, sé ekkert eftir því Grilluðum með mömmu & pabba um kvöldið, skruppum svo í Vestursíðuna & vorum þar fram eftir kvöldi Á sunnudeginum var dagurinn tekinn nokkuð snemma, stelpurnar okkar voru mættar í kirkjuna kl:10:30 & við hin litlu seinna. Það var semsagt messa, þó svo það hafi ekkert verið "messulegt" við hana & voru kórarnir tveir að syngja, æskulýðskórinn & barnakórinn Þetta var hin mesta snilld, það kom brúðuleikari & var með sýningu sem var hreint frábær & svo sungnir skemmtilegir sálmar & lög Eftir messinu var vorhátíðin en það voru hoppukastalar, grill, andlitsmálning & fleira fyrir krakkana Voða gaman allt saman Myndir frá þessu öllu er á barnalandinu okkar í maí albúminu, endilega kíkkið Svo var bara lært aðeins meira fram eftir nóttu enda prófið kl:9 um morguninn
Í gær, eftir að ég hafði öskrað eins & ég gat eftir prófið, þá var bara náð í börnin í skóla & leikskóla & brunað út á Dalvík með Ólínu Fórum þangað í sund í þessari yndislegu veðurblíðu & allir brúnir eftir sundið Eftir sundið með krökkunum, Ólínu, Sædísi vinkonu & mömmu hennar var haldið í Samkaup & keypt handa liðinu ís áður en við héldum aftur í bæinn Ég slakaði svo bara á um kvöldið & naut þess að gera ekki neitt
Í morgun fór mín sko með stráknum sínum í sveitarferð með leikskólanum á Stóra-Dunhaga en fyrir þá sem ekki vita er ég algjört borgarbarn Átti oft í svo miklum vandræðum með mig að hreinlega æla ekki, mér leið svo illa á köflum, það eina sem bjargaði var að sjá litla guttann njóta sín í botn, var samt voða háður mömmu sinni, mátti ekkert fara frá honum Þetta var bara ágætt & entist ég allan tímann, sko mína Þið getið einnig séð fullt af myndum inn á barnalandinu okkar í maí II albúminu Er svo núna að reyna klára vettfangsskýrsluna mína, sem er um hjartaaðgerð Ólínu minnar, sem á að skila á föstudaginn Svo er ég að byrja að vinna á föstudaginn, aðeins fyrr en ég átti að byrja en allt í lagi bara Er að vinna föstudags, laugardags, sunnudags & mánudagskvöld & svo þriðjudagsmorgun & þá er mín komin í 8 daga frí, nice
Jæja ætla að fara koma mér í rúmið, á skikkalegum tíma til tilbreytingar, er líka að fara hlusta á dóttir mína í fyrramálið í Glerárkirkju kl:9 en krakkarnir í 2. bekk eru að fara spila á flauturnar sínar þá Koma svo fólk að skoða myndirnar á barnalandi & kvitta, núna eru semsagt komin 2 ný albúm, bæði maí & maí II Endilega skoðið áður en ég set meira inn
Sól-& sumarkveðjur
Dagga
Bloggar | Breytt 7.5.2008 kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.5.2008 | 14:05
Próflestur
Héðan er nú kannski ekki mikið að frétta nema endalaus prófalestur Fór semsagt í sálfræðipróf á miðvikudaginn eftir að hafa setið heima & lært stanslaust síðan á sunnudag. Gekk mér bara ágætlega í prófinu, kom mér kannski á óvart með að ég bjóst við að það væri enn þyngra en það var en samt alveg nógu þungt Þetta var bara alltof mikið efni fyrir próf & gat maður ekki lært þetta allt utan af en ég hlýt að ná, kannski ekki með neinum níum & tíum en næ vonandi Við hjónin ákváðum svo að hafa bara fjölskyldukvöld á miðvikudagskvöldið þar sem ég varð að hvílast aðeins frá þessum blessaða lærdóm. Keyptum smá nammi & gos handa krökkunum, sem við höfum ekki gert lengi, keyptum einnig dvd mynd handa þeim, Bee movie, & svo var bara slappað af um kvöldið Í gær var maður ekki komin alveg í lærdómsfíling en við skruppum út á Árskóg á árlega vormarkaðinn sem haldinn er þar Keypti nokkrar jólagjafir & fengu krakkarnir smotterí & auðvitað kíkt á tengdamömmu sem var að kynna Ultratone, Orkupunktajöfnun & aloe vera vörurnar sínar Horfði svo á mynd með kallinum þegar við komum heim sem voru valdar af honum, vildi endilega eignast þessar tvær myndir, Revenge of the nerd I & II Horfðum á fyrri myndina en ég hafði aldrei séð þessar myndir & þetta var bara hin fínasta skemmtun & sé ekki eftir að hafa fjárfest í þeim Guðbjörg vinkona & börnin hennar kíktu svo til okkar í heimsókn, alltaf gaman að fá hana & krakkana & skemmtu krakkarnir sér konunglega saman
Jæja ætla að halda áfram að læra áður en ég næ í krakkana til mömmu & pabba en ég er að fara í próf á morgun kl:14 í eigindlegum rannsóknaraðferðum Svo ég þarf víst að harka af mér & horfa á Silence of the lambs í kvöld með kallinum eftir að krakkarnir eru sofnaðir en það er ritgerðarspurning upp úr þessari mynd & ég ekki horft á hana í 10 ár Hlakkar ekki neitt voða til en læt mig hafa það Svo er næsta próf á mánudaginn & er það síðasta prófið núna, svo bara endurtökupróf í lok mánaðar
Lærdómskveðjur
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.4.2008 | 14:13
Smá niðursveifla & nýjar myndir á barnalandi
Ætli sé ekki óhætt að segja að maður sé í einhverri niðursveiflu núna, gjörsamlega búin að fá nóg stundum Ég vona að ég sé ekki sú eina sem lendir í því að vera að niðurlotum komin & endalaust þreytt Maður hreyfir vart á sér rassgatið í þessari prófatíð, er stöðugt þreyttur & finnst maður gjörsamlega andlaus & ömurlegur í því sem maður er að gera Vá hvað mig hlakkar til þegar þetta verður búið núna en ég á samt eftir að læra í maí þar sem ég þarf í próf í lok maí líka Oh hvað mig hlakkar til að fara að vinna, það verður sko frí fyrir mig Jæja ætla ekki að þreyta ykkur meira með þessu væli, tími á smá update
Á laugardaginn var bara slakað á & krakkarnir skemmtu sér konunglega þar sem Sara, vinkona stelpnanna, gisti hjá þeim á föstudagskvöldinu & var hjá þeim fram yfir hádegi á laugardeginum Við Jói fórum svo á lokahóf körfuknattleiksdeildar Þórs um kvöldið & borðuðum voða góða grillmat frá Greifanum Jói stóð sig glæsilega sem veislustjóri & var mikið fjör Skemmtum okkur konunglega & vorum komin heim um ellefu leytið. Ákváðum að vera fótgangandi um kvöldið & var það himneskt þó svo það væri frekar kalt úti, frískandi bara Ólína & Eyrún pössuðu krakkana & var víst mikið fjör hér á bæ Borðuðu pítsu, átu nammi, fóru í singstar & horfðu á fjölskyldumynd Enda voru krakkarnir steinsofnaðir þegar við komum heim
Á sunnudeginum var ferðinni heitið til Hríseyjar þar sem við vorum að fara í skírn Berglind & Gunni voru að skíra fallega strákinn sinn sem fæddist 1.febrúar síðastliðinn & fékk hann nafnið Auðunn Snær Skírnarveislan var svo haldin í Brekku & var margt í boði, sveppasúpa, allskonar brauð með því ásamt fullt af tertum Við fórum aftur heim með þrjú ferjunni & þá var bara lestur sem tók við hjá mér fram eftir kvöldi & heldur hann enn áfram Ég mun ekki líta upp úr bókum fram til kl.14 á miðvikudag þegar erfiðasta prófið mitt er, sálfræði Náði samt svona meðfram lestrinum að segja inn fullt af nýjum myndum á barnaland Endilega kíkkið á þær
Jæja best að halda áfram að læra, er núna að læra utanað starfsemi heilans, ja allaveganna hluta hans
Lærdómskveðjur
Dagga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
33 dagar til jóla
Tenglar
Fallegu börnin
- Fallegu börnin mín Barnalandsíðan okkar
- Helgi Þór Andrésson Sonur Andrésar, bróður Jóa & Hafdísar
- Einar Geir Ingólfsson Sonur Hafdísar svilkonu minnar
- Ivan Freyr Lucic Sonur Anítu frænku minnar & Davors
- Birna Marija & Emilia Hrönn Dætur Davors hennar Anítu
- Katrín Sól Pálsdóttir Dóttir Halldóru vinkonu & Palla
- Íris Hrönn Káradóttir Dóttir Ástu vinkonu & Kára
- Karel Bergmann & Helgi Synir Dóru frænku Jóa & Gumma
- Davíð, Sæþór & Arnar Helgi Synir Dísu frænku Jóa & Kristján
- Ísafold Kelley Dóttir Siggu & Jesse
- Emil Ingi Gunnlaugsson Sonur Kristbjargar & Gulla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar