Lífið er bara yndislegt :o)

Já eins & fyrirsögnin segir til um þá er lífið bara yndislegt þó svo það geti oft komið upp erfiðir tímar en maður vinnur bara úr þeim & þroskast Grin Langar til að segja ykkur smá fréttir frá fallegu hetjunni okkar frá Boston Smile Jói talaði við pabba sinn í gærkveldi & voru bara góðar fréttir, hún var farin að ganga aðeins um & fara á klósettið & svona. Svo hringdu þau í okkur í dag þar sem þau ætluðu að fara í sturtu á hótelinu en gátu það ekki þar sem vatnið hitnaði ekki & urðu þau að þvo sér með kattarþvotti Shocking Magga svaf sína aðra nótt á spítalanum hjá Ólínu & svaf Magga greinilega bara ágætlega, ja eða allaveganna fast, því henni var tilkynnt að allt hefði gengið vel um nóttina, farið einu sinni á wc & þær hefðu ekki viljað vekja hana því hún svæfi svo vært Wink Allt gengur semsagt vel & er hún laus við flest tæki nema að hún er ennþá tengt við hjartalínurit & svo með súrefni þar sem hún mettar ekki vel Frown Hún er með vökva í lungunum & á ekki auðvelt með að tala, hún er einnig í æfingum með að blása & getur náð núna tveim kúlum af þrem upp Wink Hún fékk svo að skreppa í tölvu í dag & talaði hún við okkur núna undir kvöld á msn-inu & hafði skrifað komment á síðustu færslu um hversu mikið þessi dúlla saknaði okkar & hlakkaði til að hitta okkur Kissing Magga & Nonni settu einmitt inn í gær komment um stöðu mála & þykir okkur alveg óendanlega vænt um það Kissing Svo hringdum við í hana um 8 leytið í kvöld & brá okkur svo við að tala við hana, hún talaði lágt & var ekki auðvelt fyrir hana að tjá sig en við náðum að segja henni hvað okkur hlakkaði til að sjá hana & elskuðum hana Heart Krakkarnir fengu að tala við ömmu sína í morgun í síma & voru svo hamingjusamir með það Kissing Við hringjum svo aftur á morgun & heyrum í henni & setjum þá vonandi bara fleiri góðar fréttir þá Smile

En stelpurnar fóru til mömmu & pabba í kvöld þar sem þær munu gista næstu tvær nætur þar sem páskafríið í skólanum er byrjað & ég þarf að mæta í skólann næstu tvo daga GetLost Jón Páll er líka í leikskólanum fram á miðvikudag en ég er líka í Ultratone fram á miðvikudag eftir skóla svo mamma & pabbi ákváðu að þetta væri besta lausnin svo við þyrftum ekki að vekja þær snemma á morgnanna til að fara með þær til þeirra Smile Ég get þá líka einbeitt mér að því að læra fyrir prófið á þriðjudaginn í aðferðarfræði Wink Einar Geir fékk svo að gista hjá okkur á föstudagskvöldið & var mikið fjör hjá krökkunum Grin Á laugardaginn var Jói að vinna til 2 & ég í Ultratone til hádegis & ákvað svo að skreppa með mömmu & stelpunum á opnun í Rúmfatalagernum á meðan Jón Páll svaf vært hjá afa sínum Wink Gott kvöld svo með fjölskyldunni & auðvitað Svandísi, elduðum pítsu & horfðum á góða fjölskyldumynd Smile

Jæja best að halda áfram að læra fyrir aðferðarfræðiprófið mitt.

Dagga & co


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hallo allir. H'er sitjum vid eldrafolkid og b'idum eftir ad hetjan vakni kl er 6.38 her en er 10,40 heima svafum bara vel, vorum baedi a h;otelinu og hjukkan sagdi ad hun hefdi att goda nott vaknadi tvisva og nadi godum hosta tho ad engin mamma eda pabbi vari til ad hj'alpa eda hosta med henni thvi alltaf thegar hun reinir ad hosta tha forum vid ad hosta. thegar hun reinir ad hosta til ad na vatninu sem safnast hefur i lungun er thetta eins og se verid ad snua gamli ford ai gang.Annars bara allt gott buid ad laga vatnid a hotelinu og var gott ad fara i heita sturtu kl 5,40 thangad til nast hafid thad gott. kvedja fra BOSTON

Magga og Nonni (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 10:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dagbjört Pálsdóttir
Dagbjört  Pálsdóttir
Akureyringur en fyrst & fremst móðir þriggja yndislegra barna, gift yndislegum manni, sálfræðinemi, sjúkraliði & finnst mjög gaman að elda góðan mat & baka. Þeir sem vilja hafa samband við mig geta sent mér póst á daggapals@internet.is

232 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • Elín í segulómun
  • Systkinin á aðfangadag
  • Elín Alma afmælisstelpa
  • Elín afmælisstelpan
  • Á skagaströnd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband