15.3.2008 | 02:07
Aðgerðin búin
Jæja ætlaði bara að skjóta inn smá fréttum frá Boston áður en ég fer að sofa Ólína fór í aðgerðina í morgun klukkan 7:30 að staðartíma & tók hún 4 klst. Fyrstu fréttirnar sem við fengum voru þær að hann hefði gert við hjartað eins & hann hafði ætlað sér læknirinn & nú væri verið að mynda hjartað til að sjá hvort það virkaði sem skildi Henni var að sjálfsögðu haldið í svæfingunni á meðan. Svo komu þær fréttir til okkar að læknirinn var ekki alveg nógu ánægður með það hvernig hjartað starfaði & ákvað hann að reyna aðeins að laga það betur. Síðustu fréttirnar sem við fengum af henni voru að hún væri komin úr aðgerð & hjartað væri farið að starfa sjálft, án tækja & að aðgerðin hefði tekist & sögðu læknarnir hún hafi gengið eins vel & hægt væri Mikill léttir varð þá allt í einu, að vita að allt hefði nú gengið vel & þetta væri loksins yfirstaðið. Við höldum svo áfram að vera dugleg að koma með fréttir af þeim þarna úti svo fylgist með
Í kvöld var svona pínu fjölskyldukvöld & borðuðu Andrés & co hjá okkur & var svo horft á sjónvarpið Einar Geir fékk svo að gista hjá okkur & fannst honum það ekki leiðinlegt Ultratone í fyrramálið, Jói að vinna & svo bíða óteljandi skattaskýrslur handa Jóa fyrir helgina að vinna Ég ætla að taka mér frí frá lærdóm á morgun & njóta þess að þrífa, skipta á rúmum & hafa það gott með krökkunum eftir hádegið & annað kvöld Elín fór í afmæli & skemmti sér konunglega & svo eru fimleikar hjá henni í fyrramálið eftir smá frí vegna árshátíðarinnar í Glerárskóla. Skrifa betur síðar, minni enn & aftur á flottu afmælismyndirnar hans Jóns Páls á barnalandssíðunni okkar www.barnaland.is/barn/66675 endilega kíkkið
Best að drífa sig í háttinn enda klukkan orðin tvö Kveðjur úr Draumalandi
Dagga & co
33 dagar til jóla
Tenglar
Fallegu börnin
- Fallegu börnin mín Barnalandsíðan okkar
- Helgi Þór Andrésson Sonur Andrésar, bróður Jóa & Hafdísar
- Einar Geir Ingólfsson Sonur Hafdísar svilkonu minnar
- Ivan Freyr Lucic Sonur Anítu frænku minnar & Davors
- Birna Marija & Emilia Hrönn Dætur Davors hennar Anítu
- Katrín Sól Pálsdóttir Dóttir Halldóru vinkonu & Palla
- Íris Hrönn Káradóttir Dóttir Ástu vinkonu & Kára
- Karel Bergmann & Helgi Synir Dóru frænku Jóa & Gumma
- Davíð, Sæþór & Arnar Helgi Synir Dísu frænku Jóa & Kristján
- Ísafold Kelley Dóttir Siggu & Jesse
- Emil Ingi Gunnlaugsson Sonur Kristbjargar & Gulla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gott að allt gekk vel knús til ykkar og hafðu ljúfa helgi mín kæra
Brynja skordal, 15.3.2008 kl. 10:41
Gott að heyra að allt gekk vel og vona að framhaldið verði gott og öll komi þau heim glöð og ánægð.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 15.3.2008 kl. 13:37
Gott að heyra að það gangi vel þarna úti. Endilega skilaðu kveðju til þeirra.
Sædís
Sædís vinkona (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 19:06
Hallo allir saman og takk fyrir godar kvedjur til okkar Olina er nu komin af gjorgaslu (vantar islenskar stafi a tolvuna) og er tvisvar buin ad fara frammur og labba a klosettid. Sjaum mikinn mun a henni fra i morgun, og virdist hun vera akvedin ad na fermingu 29/3.Vonandi getur Olina kvittad a morgun, Kvedja fra Boston.
Margret og Jon (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 22:39
hallo, sakna ykkur rosa hlakka til ad hitta ykku um mars leytid en vid sjaumst bara<3 kvedja Olina
'Olina (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 16:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.