24.8.2008 | 23:51
Stolt af að vera íslendingur
Já maður er sko stoltur íslendingur í dag, gaman að vakna upp fyrir allar aldir með krakkana, borða morgunmat & fara svo inn í Hamar & horfa á leikinn með stemmingu Glæsilegur árangur hjá íslenska landsliðinu, til hamingju við öll með daginn
Búið að vera góð helgi, mjög góð & afslöppuð Ég var búin að vera í prófum í vikunni sem leið & á kvöldvöktum líka svo afslöppunin var sko vel þegin
Laugardeginum var eytt með Berglindi, Gunna & krökkunum þeirra & var fyrst farið í sund & svo út að borða, yndisleg stund með þeim
Svo var bara verslað & familían í Vestursíðu heimsótt. Kvöldið fór bara í leti & sjónvarpsgláp með krökkunum
Dagurinn í dag fór í að vera stoltur íslendingur & bara dúllast, að vísu bakaði ég slatta í dag bæði fyrir afmæli & nestið fyrir skólann, pizzasnúða
Svo er bara fyrsti skóladagurinn á morgun & byrja ég ekki fyrr en kl.12:35 en það er bara allt í lagi Stelpurnar byrja í skólanum kl.9 & verða til 12 & er spenningurinn í hámarki hjá þeim skvísum
Er svo á síðustu vöktunum mínum í vinnunni í vikunni, tek það með skólanum, verð á kvöldvöktum þriðjudag, miðvikudag & fimmtudag & er þá bara búin, þarf ekki að vinna á ný þar til í maí á næsta ári, lovely
Að vísu er nú skólinn meira en fullt nám svo það er ekki eins & maður sitji aðgerðarlaus í haust & vetur
Svo nú fer maður að verða duglegri að blogga þar sem ég verð meira í tölvunni vegna skólans & svo ætla ég að hendi inn myndum á barnaland á morgun, nokkrum albúmum, læt vita hér þá
Er samt búin að setja nokkrar myndir inn á flickr síðuna mína www.flickr.com/daggapals endilega kíkkið
Jæja best að fara að halla sér svo maður vakni nú ferskur í fyrramálið
Dagga
267 dagar til jóla
Tenglar
Fallegu börnin
- Fallegu börnin mín Barnalandsíðan okkar
- Helgi Þór Andrésson Sonur Andrésar, bróður Jóa & Hafdísar
- Einar Geir Ingólfsson Sonur Hafdísar svilkonu minnar
- Ivan Freyr Lucic Sonur Anítu frænku minnar & Davors
- Birna Marija & Emilia Hrönn Dætur Davors hennar Anítu
- Katrín Sól Pálsdóttir Dóttir Halldóru vinkonu & Palla
- Íris Hrönn Káradóttir Dóttir Ástu vinkonu & Kára
- Karel Bergmann & Helgi Synir Dóru frænku Jóa & Gumma
- Davíð, Sæþór & Arnar Helgi Synir Dísu frænku Jóa & Kristján
- Ísafold Kelley Dóttir Siggu & Jesse
- Emil Ingi Gunnlaugsson Sonur Kristbjargar & Gulla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ,hæ sæta mín ;) er alltaf að leiðinni í heimsókn til þín... en aldrei verður úr því:/ sorglegt... en þið eruð nú 3 í familíunni sem eigið afmæli í sept, þannig að maður verður nú að kíkja á ykkur:) svo stórafmæli hjá bóndanum bráðum:) En hafið það gott elskurnar:) verðum í bandi
kær kveðja
Ásta og co
Ásta (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 18:56
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 29.8.2008 kl. 11:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.