1.7.2008 | 00:30
Stolt móðir af stelpunum sínum
Jæja þá er maður komin heim af króknum eftir velheppnaða keppnisferð Ég keyrði á föstudeginum með mömmu & stelpunum á Sauðárkrók & fórum við beint heim til Mörtu & Jónsa Fengum góðan mat hjá Mörtu & svo fór ég með stelpurnar í Árskóla þar sem þórsararnir gistu Stelpunum fannst það sko ekki leiðinlegt að hitta stelpurnar úr liðinu & fá að gista með þeim
Á laugardeginum voru fjórir leikir spilaðir hjá stelpunum, sá fyrsti var kl.10:30 við ÍR2 & unnu þær 4-0. Annar leikurinn var á móti Völsungi en þar unnu Völsungsstelpur 1-0. Þriðji leikurinn var á móti KA en það var auðvitað sætasti sigurinn en hann unnu þórsstelpurnar 1-0 Síðasti leikur dagsins var á móti Tindastól en þar varð markalaust jafntefli Stelpurnar voru þreyttar & ánægðar með daginn & var margt brallað hjá þeim um kvöldið eins & kvöldvaka Jói, Jón Páll, pabbi & Sædís systir komu svo á krókinn rétt yfir kl.20 & borðuðu með okkur þetta dýrindis læri að hætti Mörtu en Jónsi átti afmæli Skruppum upp í skóla til stelpnanna um kvöldið að kyssa þær góða nótt & leyfa Jóni Páli, pabbanum & Sædísi aðeins að kíkka á þær systur, höfðu samt engan tíma í eitthvað svona Fyrr um daginn komu Nonni, Magga, Svandís & Ólína á krókinn til að ná einum leik með stelpunum & náðu þau KA leiknum góða Þau komu færandi hendi & gáfu stelpunum sitthvort Þórsbuffið & var það strax sett á þær & notað í fyrsta skiptið í KA leiknum Yndislegur dagur þrátt fyrir óskemmtilegt veður en maður þakkaði bara fyrir það að hann hélst þurr yfir daginn Í ljósi góðs árangurs hjá stelpunum fyrr um daginn komst í ljós um kvöldið að þær myndu keppa daginn eftir í A-riðli um 1-5 sæti en ekki B-riðli um 5-10 sæti & urðu foreldrar þá stressaðir þar sem það væru betri lið sem myndu takast á við litlu stelpurnar okkar en auðvitað bara stoltur yfir frábærum árangri þar sem þær voru nú ekki nema 11 talsins
Á sunnudeginum var byrjað að keppa kl.9 um morguninn & var þessi nístingskuldi & töluverður vindur & ekki skemmtilegt keppnisveður Þórsstelpurnar byrjuðu á að taka á móti ÍR 1 & töpuðu þær á móti þeim 8-0 & sjálfstraustið hreinlega gufaði upp enda mjög erfitt lið að taka á móti enda unnu þeir mótið. Svo strax á eftir kl.10 tóku þær á móti Tindastól & töpuðu 4-0. Þarna voru þær gjörsamlega niðurbrotnar & sjálfstraustið ekki mikið Í hádeginu komu þær svona fílsterkar til baka & unnu Völsung 4-0, stórglæsilegur leikur hjá þeim stelpum Svo síðasti leikurinn var á móti Breiðablik & náði Breiðablik að skora á síðustu mínútunum en þá voru sko Þórsstelpurnar gjörsamlega búnar á því en þær töpuðu 1-0 á móti Breiðablik. Engan að furða að stelpurnar væru orðnar þreyttar enda búnar að spila 8 leiki á 2 dögum í þessu ömurlega veðri Þær eiga sko hrós skilið þar sem vindurinn á sunnudeginum virtist ekki bara feykja boltanum út & suður heldur líka þeim sjálfum
Verðlaunaafhendingin var svo kl.15 & tóku Þórsstelpurnar við verðlaunapening fyrir 4.sæti en það voru 10 lið sem tóku þátt í 7.flokk kvenna Svo var drukkið hjá Mörtu & Jónsa áður en haldið var heim enda allir orðnir vel uppgefnir eftir allt saman & var bara legið í leti allt sunnudagskvöldið Þær fóru seint að sofa þar sem þær höfðu náð sér í kríu fyrr um daginn svo ég leyfði þeim að taka sér frí um morguninn á æfingu & leyfði þeim bara að sofa sem þær gerðu Svo fara þær ferskar á æfingu í dag, þar sem þetta er skrifað eftir miðnætti Ég ætla svo að reyna þrífa íbúðina á morgun & miðvikudaginn & hafa það gott þar sem ég er að fara að vinna á fimmtudagsmorgunn, tek þá morgunvakt & svo 5 næturvaktir áður en ég fer aftur í frí en þetta verður aðallega strembið þar sem ég sé manninn minn ekkert þessa dagana sökum Pollamótsins en ég fæ að sjá hann á sunnudaginn Svo ætla mamma & pabbi að aðstoða mig aðeins svo ég fái aðeins að sofa eftir næturvaktirnar Svo er Jón Páll að fara í sumarfrí í 4 vikur & er síðasti dagurinn núna á föstudaginn, honum mun sko ekki leiðast það þar sem drengurinn er óskaplega heimakær Svo er bara ættarmótið hjá Jóa um þarnæstu helgi í Árskógi & þá verður bara tjaldað & haft gaman af Set hér svo inn eina mynd síðan um helgina & ef þið viljið skoða fleiri myndir þá er ég búin að setja inn um 100 myndir inn á barnalandssíðuna okkar http://www.barnaland.is/barn/66675 endilega kíkkið & kvittið
Jæja þar til næst elskurnar, hafið það sem allra best
Dagga
33 dagar til jóla
Tenglar
Fallegu börnin
- Fallegu börnin mín Barnalandsíðan okkar
- Helgi Þór Andrésson Sonur Andrésar, bróður Jóa & Hafdísar
- Einar Geir Ingólfsson Sonur Hafdísar svilkonu minnar
- Ivan Freyr Lucic Sonur Anítu frænku minnar & Davors
- Birna Marija & Emilia Hrönn Dætur Davors hennar Anítu
- Katrín Sól Pálsdóttir Dóttir Halldóru vinkonu & Palla
- Íris Hrönn Káradóttir Dóttir Ástu vinkonu & Kára
- Karel Bergmann & Helgi Synir Dóru frænku Jóa & Gumma
- Davíð, Sæþór & Arnar Helgi Synir Dísu frænku Jóa & Kristján
- Ísafold Kelley Dóttir Siggu & Jesse
- Emil Ingi Gunnlaugsson Sonur Kristbjargar & Gulla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta fótboltamót var BARA gaman
Páll Jóhannesson, 1.7.2008 kl. 15:12
Gott að þið skemmtuð ykkur öll vel. Og stelpurnar okkar stóðu sig vel. kveðjur.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 1.7.2008 kl. 16:42
Halló og takk fyrir síðast. Og til hamingju með 4 sætið, glæsilegt hjá ykkur stelpur. Það var virkilega gaman að sjá ykkur Þórsstelpur vinna KA Bara gaman að horfa á.sjáumst vonandi bráðum.Knús og kossar
afi og amma í vestursíðu (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 20:12
Flottar stelpur! Hafðu ljúfa helgi elskuleg
Brynja skordal, 4.7.2008 kl. 12:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.