Tíminn líður alltof hratt .....

Já kannski ég sé ein um það en mér finnst tíminn líða alltof hratt, helgarnar eru nýbúnar þegar næsta helgi er komin GetLost Áður en ég veit af verður skólinn búinn & það styttist óðum í það & er mig sko farið að hlakka til að fara í smá jólafrí Grin Alltaf nóg að gera í skólanum með próf & verkefni en nú er ég búin í öllum miðannaprófum, á bara 3 verkefni eftir & svo byrja ég í prófum í byrjun desember Wink 

Síðan síðast þá hefur eitthvað gerst en um þarsíðustu helgi þá fórum við í mat til Ástu & Kára í matarboð, alger snilld & var svo gaman að hittast svona Grin Góður matur & frábær félagsskapur Heart Svo á sunnudeginum sungu stelpurnar okkar í fjölskylduguðþjónustu í Glerárkirkju & fannst mér hræðilegt að komast ekki en ég var komin með hita & einhvern óþverra & bannaði kallinn mér að fara nokkurn skapaðan hlut Pinch Síðasta vika fór í að reyna hrista þetta úr mér & endaði hjá lækni sem komst að því að ég var með sýkingu í líkamanum & komin með vökva í eyrun, bara eins & litlu börnin W00t Fékk sýklalyf & er bara orðin helv... góð núna Wink Helgin núna var svo bara indæl & borðaði Sædís vinkona hjá okkur á föstudeginum, pöntuðum pítsu, borðuðum nammi & horfðum á imbann með vindsæng á stofugólfinu Grin Á laugardaginn fórum við í bíó með krakkana & fór ég með stelpunum & mömmu á High school Musical 3 myndina & voru stelpurnar svo hamingjusamar með þetta en það var fyrir löngu búið að ákveða að fara. Ég lofaði að fara með þeim þegar það yrði sparbíó & það var sko talið niður í þessa bíóferð Grin Jói fór svo í Borgarbíó með litla guttann á Lukku Láka & skemmtu sér bara vel Wink Jón Páll var eins & ljós í bíóinu þrátt fyrir aö aðrir krakkar væru hlaupandi um þá sat minn góður hjá pabba sínum áður en myndin byrjaði & góður alla myndina, yndislegur strákurinn okkar Wink

Svo eru enn & aftur komnar myndir inn á barnaland svo kíkiði ef þið eruð ekki búin að því. Frí er svo í skólanum hjá stelpunum á morgun en þá förum við foreldrarnir með þær í foreldraviðtal, verður gaman að heyra hvernig þeim gengur í skólanum Grin Svo er foreldrakaffi á fimmtudaginn í leikskólanum & er ég að glíma við hvað ég á að gera, þyrfti að mæta í skólann en langar samt svo að mæta, þetta hefur alltaf lent á þannig tíma að ég komist ekki GetLost Svo ætla ég að stinga af um næstu helgi & fara úr bænum með krakkana & skilja kallinn eftir heima W00t Ætla að fara á Skagaströnd á föstudaginn til að hitta Guðbjörgu vinkonu & krakkana hennar Grin Mikil tilhlökkun ríkir hjá krökkunum að fá að fara & er sko talið niður. Við ætlum að skilja pabbann eftir heima & ætlar hann að nýta tímann vel á meðan & vinna í bókhaldi bara. Ætlaði reyndar að fara suður á laugardeginum á fund en var að hugsa um að senda Sölla bróðir fyrir sig svo hann geti unnið í bókhaldi W00t Ætla svo að bruna í bæinn aftur á sunnudaginn & skreppa til Ástu vinkonu í kaffi en hún verður 25 ára á laugardaginn þessi elska Heart

Hafið það gott & verið góð við hvort annað Heart

Dagga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Innlit og kveðjur.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 11.11.2008 kl. 22:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dagbjört Pálsdóttir
Dagbjört  Pálsdóttir
Akureyringur en fyrst & fremst móðir þriggja yndislegra barna, gift yndislegum manni, sálfræðinemi, sjúkraliði & finnst mjög gaman að elda góðan mat & baka. Þeir sem vilja hafa samband við mig geta sent mér póst á daggapals@internet.is

244 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • Elín í segulómun
  • Systkinin á aðfangadag
  • Elín Alma afmælisstelpa
  • Elín afmælisstelpan
  • Á skagaströnd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1185

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband